„Guðmundur Magnússon (Goðalandi)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
 
(9 millibreytingar ekki sýndar frá sama notandanum)
Lína 2: Lína 2:




[[Guðmundur Magnússon (Goðaland)|Guðmundur Magnússon]] fæddist 5. september 1877 í Landeyjum og lést 21. september 1959, 82 ára að aldri. Hann var sonur Magnúsar Guðmundssonar (1852 - 1892), bónda í Hrauk í Vestur-Landeyjum. Bróðir hans var [[Páll Guðmundsson (Jómsborg)|Páll Guðmundsson]] og báðir voru synir Guðmundar Pálssonar, bónda og smiðs á Strönd og Elínu Magnúsdóttur. Móðir Guðmundar var [http://www.heimaslod.is/images/d/da/Bjarghildur_Gu%C3%B0nad%C3%B3ttir.jpeg Bjarghildur Guðnadóttir] (1855 - 1941). Guðmundur missti föður sinn er hann var á fimmtánda ári og stóð þá Bjarghildur uppi án fyrirvinnu með þrjú börn, öll ung að árum. Guðmundur elstur, fimmtán ára gamall, [http://www.heimaslod.is/images/c/c1/Gu%C3%B0bj%C3%B6rg_Magn%C3%BAsd%C3%B3ttir_%C3%A1_Litlalandi.jpeg Guðbjörg (Litlalandi)] systir hans ellefu ára og Guðni tveggja ára. Í þá daga var ekki leikur fyrir fátæka móður að komast af, enda varð hún að láta tvö eldri börnin frá sér tveimur árum síðar.  
[[Guðmundur Magnússon (Goðaland)|Guðmundur Magnússon]] fæddist 5. september 1877 á Arnarhóli í Landeyjum og lést 21. september 1959, 82 ára að aldri. Hann var sonur Magnúsar Guðmundssonar (1852 - 1892), bónda í Hrauk í Vestur-Landeyjum, en bróðir hans var [[Páll Guðmundsson (Jómsborg)|Páll Guðmundsson]] og báðir voru synir Guðmundar Pálssonar, bónda og smiðs á Strönd og Elínu Magnúsdóttur. Móðir Guðmundar var [[Bjarghildur Guðnadóttir]] (1855 - 1941). Guðmundur missti föður sinn er hann var á fimmtánda ári og stóð þá Bjarghildur uppi án fyrirvinnu með þrjú börn, öll ung að árum. Guðmundur elstur, fimmtán ára gamall, [[Guðbjörg Magnúsdóttir (Litlalandi)|Guðbjörg (Litlalandi)]] systir hans ellefu ára og Guðni tveggja ára. Í þá daga var ekki leikur fyrir fátæka móður að komast af, enda varð hún að láta tvö eldri börnin frá sér tveimur árum síðar og fór Guðmundur til Eyrarbakka 17 ára gamall.  


Guðmundur tók sveinspróf í trésmíði á Eyrarbakka árið 1899 og stundaði um hríð trésmíðanám í Kaupmannahöfn þar sem hann kynntist verkalýðshreyfingunni og jafnaðarstefnunni, sem hann aðhylltist ávallt síðan. Hann stundaði líka siglingar á gufuskipinu Vestu á meðan hann var þar. Árið 1902 kemur Guðmundur heim til Íslands og sest að í Reykjavík og reisti þar  hús fyrir fjölskyldu sína á Grettisgötu 55. Hann var til dæmis einn af smiðum Bjarnaborgar árið 1902 (Vitastíg 83), sem var fyrsta eiginlega fjölbýlishúsið á landinu. Guðmundur flutti með konu sinni og þremur börnum ásamt Bjarghildi móður sinni til Vestmannaeyja árið 1908 og réðist þar sem smiður og byggingarmeistari við Edinborgarverzlun [[Gísli J. Johnsen|G.J.J.]] Þau settust fyrst að í [[Garðhús|Garðhúsum]] en keyptu síðar [[Dvergasteinn|Dvergastein]] og bjuggu þau þar í þrjú ár. Árið 1908 sá hann til dæmis um byggingu [[Skjaldbreið|Skjaldbreiðar]] og sumarið 1910 hóf G.J.J. uppbyggingu nýrra bryggju og var Guðmundur aðalsmiður í því verki. Hann var einnig verkstjóri við byggingu hafnargarðana 1914 í Vestmannaeyjum og var því verki lokið 1922.
Guðmundur tók sveinspróf í trésmíði á Eyrarbakka árið 1899 og stundaði um hríð trésmíðanám í Kaupmannahöfn þar sem hann kynntist verkalýðshreyfingunni og jafnaðarstefnunni, sem hann aðhylltist ávallt síðan. Hann stundaði líka siglingar á gufuskipinu Vestu á meðan hann var þar. Árið 1902 kemur Guðmundur heim til Íslands og leigir íbúð á Grettisgötu 31 í Reykjavík, hjá Guðjóni Jónssyni múrara. Árið 1903 reisir hann hús fyrir fjölskyldu sína á Grettisgötu 55 og flytur Guðjón í sama húsnæði skv. Bæjarskrá Reykjavíkur 1905. Grettisgatan var hækkuð um eina hæð 1925. Guðmundur var til dæmis einn af smiðum Bjarnaborgar árið 1902 (Vitastíg 83), sem var fyrsta eiginlega fjölbýlishúsið á landinu. Guðmundur flutti með konu sinni og þremur börnum ásamt Bjarghildi móður sinni til Vestmannaeyja árið júlí-september 1908 og réðist þar sem smiður og byggingarmeistari við Edinborgarverzlun [[Gísli J. Johnsen|G.J.J.]] Þau settust fyrst að í [[Garðhús|Garðhúsum]] hjá Ólafi, bróður Helgu, en keyptu síðar [[Dvergasteinn|Dvergastein]] og bjuggu þau þar í þrjú ár. Árið 1908 sá hann til dæmis um byggingu [[Skjaldbreið|Skjaldbreiðar]] og sumarið 1910 hóf G.J.J. uppbyggingu nýrra bryggju og var Guðmundur aðalsmiður í því verki. Hann var einnig verkstjóri við byggingu hafnargarðana 1914 í Vestmannaeyjum og var því verki lokið 1922. Guðmundur sat í stjórn Kaupfélagsins Drífanda frá stofnun þess.


Guðmundur Magnússon giftist [[Helga Jónsdóttir (Goðaland)|Helgu Jónsdóttur]] árið 1902 og átti með henni fjögur börn. Þau eru:<br>
Guðmundur Magnússon giftist [[Helga Jónsdóttir (Goðaland)|Helgu Jónsdóttur]] árið 1902 og átti með henni fjögur börn. Þau eru:<br>
Lína 12: Lína 12:
4. [[Dagmar Aðalbjörg Guðmundsdóttir]],  f. 21.06.1914, d. 30.01.1999.
4. [[Dagmar Aðalbjörg Guðmundsdóttir]],  f. 21.06.1914, d. 30.01.1999.


Árið 1920 (hugsanlega fyrir það ártal) settist fjölskyldan að í Skjaldbreið og er Bjarghildur farin aftur til meginlandsins. Hann reisti svo [[Goðaland]] sem stendur við Flatir 16 árið 1922 og flutti þar með fjölskyldu sinni þar sem  þau bjuggu ávallt síðan og rak hann þar trésmíðaverkstæði til dauðadags.
Um 1911 settist fjölskyldan að í Skjaldbreið. Í manntalinu 1920 er Bjarghildur farin aftur til Landeyja og býr fjölskyldan enn í Skjaldbreið. Hann reisti svo [[Goðaland]] sem stóð við Flatir 16 árið 1922 og flutti þar með fjölskyldu sinni þar sem  þau bjuggu ávallt síðan og rak hann þar trésmíðaverkstæði til dauðadags.


Guðmundur var kosinn í bæjarstjórn 1934 - 1938 fyrir Alþýðuflokkinn.  
Guðmundur var kosinn í bæjarstjórn 1934 - 1938 fyrir Alþýðuflokkinn. 1946 er Guðmundur á heiðurssæti A-listans og sat í byggingarnefnd fyrir Alþýðuflokkinn. Einnig skipaður í heiðurssæti kosningarnar 1950, 1954 og 1958. 
 
[[Mynd:Guðmundur Magnússon, Ellert og Unnur og Guðmundur Karlsson.jpg|vinstri|thumb|414x414dp]]
[[Mynd:Guðmundur Magnússon á Goðalandi.jpg|vinstri|thumb|408x408dp]]


== Myndir ==
== Myndir ==
<Gallery>
<gallery>
Mynd:KG-mannamyndir_2656.jpg|Guðmundur Magnússon
Mynd:KG-mannamyndir 2656.jpg|Guðmundur Magnússon
Mynd:KG-mannamyndir_2655.jpg|Guðmundur Magnússon
Mynd:KG-mannamyndir 2655.jpg|Guðmundur Magnússon
 
Mynd:Guðmundur Magnússon og Hafsteinn 1958.jpg
</gallery>
</gallery>


{{Heimildir|
{{Heimildir|
*Blik 1962
*Blik 1962
*Blik 1976 / Samvinnusamtökin í Vestmannaeyjum
*Íslendingabók.is.
*Íslendingabók.is.
*Manntöl.
*Manntöl.
Lína 30: Lína 34:
*Munnlegar heimildir frá barnabörnum.
*Munnlegar heimildir frá barnabörnum.
*Bæjarskrá Reykjavíkur 1905.}}
*Bæjarskrá Reykjavíkur 1905.}}


[[Flokkur: Trésmiðir]]
[[Flokkur: Trésmiðir]]

Núverandi breyting frá og með 22. september 2026 kl. 23:48

Guðmundur Magnússon


Guðmundur Magnússon fæddist 5. september 1877 á Arnarhóli í Landeyjum og lést 21. september 1959, 82 ára að aldri. Hann var sonur Magnúsar Guðmundssonar (1852 - 1892), bónda í Hrauk í Vestur-Landeyjum, en bróðir hans var Páll Guðmundsson og báðir voru synir Guðmundar Pálssonar, bónda og smiðs á Strönd og Elínu Magnúsdóttur. Móðir Guðmundar var Bjarghildur Guðnadóttir (1855 - 1941). Guðmundur missti föður sinn er hann var á fimmtánda ári og stóð þá Bjarghildur uppi án fyrirvinnu með þrjú börn, öll ung að árum. Guðmundur elstur, fimmtán ára gamall, Guðbjörg (Litlalandi) systir hans ellefu ára og Guðni tveggja ára. Í þá daga var ekki leikur fyrir fátæka móður að komast af, enda varð hún að láta tvö eldri börnin frá sér tveimur árum síðar og fór Guðmundur til Eyrarbakka 17 ára gamall.

Guðmundur tók sveinspróf í trésmíði á Eyrarbakka árið 1899 og stundaði um hríð trésmíðanám í Kaupmannahöfn þar sem hann kynntist verkalýðshreyfingunni og jafnaðarstefnunni, sem hann aðhylltist ávallt síðan. Hann stundaði líka siglingar á gufuskipinu Vestu á meðan hann var þar. Árið 1902 kemur Guðmundur heim til Íslands og leigir íbúð á Grettisgötu 31 í Reykjavík, hjá Guðjóni Jónssyni múrara. Árið 1903 reisir hann hús fyrir fjölskyldu sína á Grettisgötu 55 og flytur Guðjón í sama húsnæði skv. Bæjarskrá Reykjavíkur 1905. Grettisgatan var hækkuð um eina hæð 1925. Guðmundur var til dæmis einn af smiðum Bjarnaborgar árið 1902 (Vitastíg 83), sem var fyrsta eiginlega fjölbýlishúsið á landinu. Guðmundur flutti með konu sinni og þremur börnum ásamt Bjarghildi móður sinni til Vestmannaeyja árið júlí-september 1908 og réðist þar sem smiður og byggingarmeistari við Edinborgarverzlun G.J.J. Þau settust fyrst að í Garðhúsum hjá Ólafi, bróður Helgu, en keyptu síðar Dvergastein og bjuggu þau þar í þrjú ár. Árið 1908 sá hann til dæmis um byggingu Skjaldbreiðar og sumarið 1910 hóf G.J.J. uppbyggingu nýrra bryggju og var Guðmundur aðalsmiður í því verki. Hann var einnig verkstjóri við byggingu hafnargarðana 1914 í Vestmannaeyjum og var því verki lokið 1922. Guðmundur sat í stjórn Kaupfélagsins Drífanda frá stofnun þess.

Guðmundur Magnússon giftist Helgu Jónsdóttur árið 1902 og átti með henni fjögur börn. Þau eru:
1. Magnús Karl Guðmundsson f. 04.05.1903, d. 10.05.1993.
2. Jón Guðmundsson f. 15.07.1905, d. 04.03.1972.
3. Guðmunda Margrét Guðmundsdóttir f. 19.03.1908, d. 04.09.1996.
4. Dagmar Aðalbjörg Guðmundsdóttir, f. 21.06.1914, d. 30.01.1999.

Um 1911 settist fjölskyldan að í Skjaldbreið. Í manntalinu 1920 er Bjarghildur farin aftur til Landeyja og býr fjölskyldan enn í Skjaldbreið. Hann reisti svo Goðaland sem stóð við Flatir 16 árið 1922 og flutti þar með fjölskyldu sinni þar sem þau bjuggu ávallt síðan og rak hann þar trésmíðaverkstæði til dauðadags.

Guðmundur var kosinn í bæjarstjórn 1934 - 1938 fyrir Alþýðuflokkinn. 1946 er Guðmundur á heiðurssæti A-listans og sat í byggingarnefnd fyrir Alþýðuflokkinn. Einnig skipaður í heiðurssæti kosningarnar 1950, 1954 og 1958.

Myndir


Heimildir

  • Blik 1962
  • Blik 1976 / Samvinnusamtökin í Vestmannaeyjum
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Útgerðarsaga, annar áratugurinn.
  • Munnlegar heimildir frá barnabörnum.
  • Bæjarskrá Reykjavíkur 1905.