„Jón Ingileifsson (Reykholti)“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
| (16 millibreytingar ekki sýndar frá sama notandanum) | |||
| Lína 1: | Lína 1: | ||
[[Mynd: | [[Mynd:Jón_Ingileifsson.jpeg|thumb|300px|Jón Ingileifsson]] | ||
Jón Ingileifsson, [[Reykholt (eldra)|Reykholti]] í Vestmannaeyjum, fæddist 23. júní 1883 og lést 18. nóvember 1918. Tvítugur fór Jón til Vestmannaeyja og hóf sjómennsku á [[Friður|Friði]] hjá [[Gísli Lárusson|Gísla Lárussyni]] í [[Stakkagerði]]. Hann var formaður á honum árið 1906. Árið 1907 keypti hann [[Eros]] og var formaður þar | Jón Ingileifsson, [[Reykholt (eldra)|Reykholti]] í Vestmannaeyjum, fæddist 23. júní 1883 og lést 18. nóvember 1918. Jón var fæddur að Auðnum í Meðallandi og var sonur hjónanna [https://timarit.is/page/1251302 Ingileifs Ólafssonar] f. 17. apríl 1852 í Bakkakoti í Meðallandi, d. 9. mars 1944 í Reykjavík, og [[:Mynd:KG-mannamyndir 15253.jpg|Þórunnar Magnúsdóttur]] f. 12. ágúst 1857 á Ytri-Lyngum í Meðallandi, d. 29. desember 1941 í Görðum í Mýrdal. Þau gengu í hjónaband 24. september 1881 og eignuðust sex börn: | ||
# Jón Ingileifsson | |||
# Elínu Ingileifsdóttur, f. 21. september 1884 á Grímsstöðum á Fjöllum, d. 4. febrúar 1971 í Manitoba, Kanada. | |||
# [[:Mynd:KG-mannamyndir 3945.jpg|Guðrúnu Ingileifsdóttur]], f. 27. ágúst 1886 í Norðurhjáleigu í Álftaveri,, d. 16. nóvember 1918 í Reykjavík. | |||
# [[:Mynd:KG-mannamyndir 16292.jpg|Magnús Ingileifsson]], f. 4. febrúar 1888 í Norðurhjáleigu í Álftaveri, d. 15. desember 1967 | |||
# [[:Mynd:KG-mannamyndir 6489.jpg|Kristínu Ingileifsdóttur]], f. 2. apríl 1889 í Norðurhjáleigu, Álftaveri, d. 27. des. 1988 í Reykjavík. | |||
# [[Ólafur Ingileifsson|Ólaf Ingileifsson]], f. 9. júní 1891 á Ketilsstöðum, Dyrhólahr., d. 14. feb. 1968 í Vestmannaeyjum. | |||
Jón fæddist á því eina ári sem fjölskyldan bjó að Auðnum og áttu þá aðeins fimm eða sex ær, tvo hesta og höfðu kú á leigu. Efnin voru svo lítil að þeim var gefin mjólk handa Jóni allan fyrsta veturinn hans. Skömmu síðar var ákveðið að leita sér lífsviðurværis austur í Múlasýslu snemmvors 1884. Ferðin var ákaflega erfið; Þórunn sat á hesti með Jón ungan í kjöltunni og jafnframt barnshafandi, og Ingileifur þurfti mesta hluta leiðarinnar að ganga. Þau voru nánast félaus og reiddu sig mikið á gestrisni fólks á leiðinni. Sú för skilaði sér engu fyrir fjölskylduna og snéru þau aftur í Meðallandið um sumarið. Fjölskyldan bjó lengst af við mikla fátækt. Aðstæður þeirra urðu svo erfiðar að þrjú af börnum þeirra voru tekin frá þeim ung og komið fyrir hjá öðrum. Þórunn minntist þess síðar sem einnar sárustu reynslu ævi sinnar. Vorið 1892 skildu þau Ingileifur samvistum og fór Þórunn til Heiðmundar Hjaltasonar á Suður-Götum í Mýrdal. Eftir það bjuggu þau Ingileifur aldrei saman aftur, þótt þau skildu ekki formlega að lögum. Börnin ólust því að nokkru leyti upp sitt á hvorum staðnum. Guðrún systir Jóns lést úr spænsku veikinni 16. nóvember 1918, aðeins tveimur dögum áður en Jón sjálfur lést af sama sjúkdómi. | |||
Tvítugur fór Jón til Vestmannaeyja og hóf sjómennsku á [[Friður|Friði]] hjá [[Gísli Lárusson|Gísla Lárussyni]] í [[Stakkagerði]]. Hann var formaður á honum árið 1906. Árið 1907 keypti hann [[Eros]] frá Danmörku og var formaður þar veturinn 1908. Árið 1912 keypti Jón vélbátinn [[Skuld (bátur)|Skuld]] og var formaður á honum í þrjár vertíðir. Tók hann þá við [[Svanur|Svani]] sem hann átti fjórðungs hlut í, og var formaður á honum árin 1916 og 1918. Jón var annar í Vestmannaeyjum sem tók fiskimannapróf í Stýrimannaskólanum í Reykjavík. Tók hann það á aðeins einum vetri og var það talið mikið afrek. Jón var fenginn til að stýra skipinu Skaftfellingi til Víkur í Mýrdal og reyndist þetta vera hans hinsta ferð, en er hann snéri aftur heim var hann fárveikur. Jón lést úr spænsku veikinni, einungis 35 ára gamall. | |||
Þau ár sem Jón var formaður, var hann alltaf með þeim aflahæstu. Það er óhætt að fullyrða, að þar fór saman vit og dugnaður. Jón kenndi einnig [[Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1966/ Fyrsta stýrimannanámskeið í Vestmannaeyjum árið 1918|Íslenzku]] á fyrsta stýrimannanámskeiði Vestmannaeyja 1918. Jón var atorkumikill og kappsamur maður. Hið besta vildi hann gera fyrir alla og sinnti öllum verkefnum sem hann tók að sér, af alúð. Hann stóð fast með eigin hugsjón og var með mikinn drifkraft til allra verka. Skapstór þótti hann, en vildi jafnframt að hver hlutur væri rétt og vel af hendi leystur. | |||
Jón var einn af þeim 45 hugsjónarmönnum sem tóku þátt í að stofna Ísfélag Vestmannaeyja og einn af þeim 72 mönnum sem stofnuðu Smiðjufélag Vestmannaeyja. Loks tók hann þátt í þeirri söfnun meðal landsmanna sem varð grundvöllur að stofnun Eimskipafélags Íslands. | |||
Jón var einnig mikill íþróttamaður. Á Þjóðhátíð Vestmannaeyja árið 1910 sigraði hann í glímu og var síðar talinn meðal ágætustu glímumanna Eyjanna. Hann var jafnframt einn þeirra sem ruddu knattspyrnunni braut í Vestmannaeyjum. Á fyrsta Íslandsmótinu í knattspyrnu árið 1912 lék Jón sem hægri framvörður með liði KV, forvera ÍBV. Ferðin til Reykjavíkur tók tvo daga og var keppnin hin harðasta, en með þátttöku sinni lögðu Jón og félagar hans grunn að knattspyrnusögu Vestmannaeyja. Árið eftir, 9. september 1913, var Jón einn 33 stofnenda íþróttafélagsins Þórs. | |||
Jón Ingileifsson kvæntist [[Elín Einarsdóttir (Reykholti)|Elínu Einarsdóttur]] 23. desember 1906. Hófu þau búskap sinn á [[Dalbær|Dalbæ]], en reistu þau Reykholt hið eldra árið 1914 með góðra vina hjálp. Hjónin eignuðust þrjár dætur, en aðeins ein þeirra komst á legg. | |||
# Stúlka, f. andvana 21. nóvember 1909 í Dalbæ. | |||
# [[Unnur Jónsdóttir (Reykholti)|Unnur Sigrún Jónsdóttir]], f. 6. júní 1912 í Reykjavík, d. 16. febrúar 1995 í Reykjavík. | |||
# Jóna Elín Jónsdóttir, f. andvana 3. október 1916 í Reykholti. | |||
Jón var aflakóngur árið 1914. Fráfall Jóns var fjölskyldunni mikið áfall og sérstaklega Elínu. Sat hún þá eftir 36 ára gömul með Unni, aðeins sex ára, en hinar tvær dætur þeirra höfðu fæðst andvana. Sýndu Eyjamenn fjölskyldunni í Reykholti þá samstöðu og kærleika sem einkennir Eyjaskeggja og hlúðu vel að fjölskyldunni. | |||
Núverandi breyting frá og með 23. september 2026 kl. 07:13

Jón Ingileifsson, Reykholti í Vestmannaeyjum, fæddist 23. júní 1883 og lést 18. nóvember 1918. Jón var fæddur að Auðnum í Meðallandi og var sonur hjónanna Ingileifs Ólafssonar f. 17. apríl 1852 í Bakkakoti í Meðallandi, d. 9. mars 1944 í Reykjavík, og Þórunnar Magnúsdóttur f. 12. ágúst 1857 á Ytri-Lyngum í Meðallandi, d. 29. desember 1941 í Görðum í Mýrdal. Þau gengu í hjónaband 24. september 1881 og eignuðust sex börn:
- Jón Ingileifsson
- Elínu Ingileifsdóttur, f. 21. september 1884 á Grímsstöðum á Fjöllum, d. 4. febrúar 1971 í Manitoba, Kanada.
- Guðrúnu Ingileifsdóttur, f. 27. ágúst 1886 í Norðurhjáleigu í Álftaveri,, d. 16. nóvember 1918 í Reykjavík.
- Magnús Ingileifsson, f. 4. febrúar 1888 í Norðurhjáleigu í Álftaveri, d. 15. desember 1967
- Kristínu Ingileifsdóttur, f. 2. apríl 1889 í Norðurhjáleigu, Álftaveri, d. 27. des. 1988 í Reykjavík.
- Ólaf Ingileifsson, f. 9. júní 1891 á Ketilsstöðum, Dyrhólahr., d. 14. feb. 1968 í Vestmannaeyjum.
Jón fæddist á því eina ári sem fjölskyldan bjó að Auðnum og áttu þá aðeins fimm eða sex ær, tvo hesta og höfðu kú á leigu. Efnin voru svo lítil að þeim var gefin mjólk handa Jóni allan fyrsta veturinn hans. Skömmu síðar var ákveðið að leita sér lífsviðurværis austur í Múlasýslu snemmvors 1884. Ferðin var ákaflega erfið; Þórunn sat á hesti með Jón ungan í kjöltunni og jafnframt barnshafandi, og Ingileifur þurfti mesta hluta leiðarinnar að ganga. Þau voru nánast félaus og reiddu sig mikið á gestrisni fólks á leiðinni. Sú för skilaði sér engu fyrir fjölskylduna og snéru þau aftur í Meðallandið um sumarið. Fjölskyldan bjó lengst af við mikla fátækt. Aðstæður þeirra urðu svo erfiðar að þrjú af börnum þeirra voru tekin frá þeim ung og komið fyrir hjá öðrum. Þórunn minntist þess síðar sem einnar sárustu reynslu ævi sinnar. Vorið 1892 skildu þau Ingileifur samvistum og fór Þórunn til Heiðmundar Hjaltasonar á Suður-Götum í Mýrdal. Eftir það bjuggu þau Ingileifur aldrei saman aftur, þótt þau skildu ekki formlega að lögum. Börnin ólust því að nokkru leyti upp sitt á hvorum staðnum. Guðrún systir Jóns lést úr spænsku veikinni 16. nóvember 1918, aðeins tveimur dögum áður en Jón sjálfur lést af sama sjúkdómi.
Tvítugur fór Jón til Vestmannaeyja og hóf sjómennsku á Friði hjá Gísla Lárussyni í Stakkagerði. Hann var formaður á honum árið 1906. Árið 1907 keypti hann Eros frá Danmörku og var formaður þar veturinn 1908. Árið 1912 keypti Jón vélbátinn Skuld og var formaður á honum í þrjár vertíðir. Tók hann þá við Svani sem hann átti fjórðungs hlut í, og var formaður á honum árin 1916 og 1918. Jón var annar í Vestmannaeyjum sem tók fiskimannapróf í Stýrimannaskólanum í Reykjavík. Tók hann það á aðeins einum vetri og var það talið mikið afrek. Jón var fenginn til að stýra skipinu Skaftfellingi til Víkur í Mýrdal og reyndist þetta vera hans hinsta ferð, en er hann snéri aftur heim var hann fárveikur. Jón lést úr spænsku veikinni, einungis 35 ára gamall.
Þau ár sem Jón var formaður, var hann alltaf með þeim aflahæstu. Það er óhætt að fullyrða, að þar fór saman vit og dugnaður. Jón kenndi einnig Íslenzku á fyrsta stýrimannanámskeiði Vestmannaeyja 1918. Jón var atorkumikill og kappsamur maður. Hið besta vildi hann gera fyrir alla og sinnti öllum verkefnum sem hann tók að sér, af alúð. Hann stóð fast með eigin hugsjón og var með mikinn drifkraft til allra verka. Skapstór þótti hann, en vildi jafnframt að hver hlutur væri rétt og vel af hendi leystur.
Jón var einn af þeim 45 hugsjónarmönnum sem tóku þátt í að stofna Ísfélag Vestmannaeyja og einn af þeim 72 mönnum sem stofnuðu Smiðjufélag Vestmannaeyja. Loks tók hann þátt í þeirri söfnun meðal landsmanna sem varð grundvöllur að stofnun Eimskipafélags Íslands.
Jón var einnig mikill íþróttamaður. Á Þjóðhátíð Vestmannaeyja árið 1910 sigraði hann í glímu og var síðar talinn meðal ágætustu glímumanna Eyjanna. Hann var jafnframt einn þeirra sem ruddu knattspyrnunni braut í Vestmannaeyjum. Á fyrsta Íslandsmótinu í knattspyrnu árið 1912 lék Jón sem hægri framvörður með liði KV, forvera ÍBV. Ferðin til Reykjavíkur tók tvo daga og var keppnin hin harðasta, en með þátttöku sinni lögðu Jón og félagar hans grunn að knattspyrnusögu Vestmannaeyja. Árið eftir, 9. september 1913, var Jón einn 33 stofnenda íþróttafélagsins Þórs.
Jón Ingileifsson kvæntist Elínu Einarsdóttur 23. desember 1906. Hófu þau búskap sinn á Dalbæ, en reistu þau Reykholt hið eldra árið 1914 með góðra vina hjálp. Hjónin eignuðust þrjár dætur, en aðeins ein þeirra komst á legg.
- Stúlka, f. andvana 21. nóvember 1909 í Dalbæ.
- Unnur Sigrún Jónsdóttir, f. 6. júní 1912 í Reykjavík, d. 16. febrúar 1995 í Reykjavík.
- Jóna Elín Jónsdóttir, f. andvana 3. október 1916 í Reykholti.
Jón var aflakóngur árið 1914. Fráfall Jóns var fjölskyldunni mikið áfall og sérstaklega Elínu. Sat hún þá eftir 36 ára gömul með Unni, aðeins sex ára, en hinar tvær dætur þeirra höfðu fæðst andvana. Sýndu Eyjamenn fjölskyldunni í Reykholti þá samstöðu og kærleika sem einkennir Eyjaskeggja og hlúðu vel að fjölskyldunni.
Heimildir
- Jón Sigurðsson. Aflakóngar Vestmannaeyja 1906-1929. Sjómannadagsblaðið 1961. 10. árg.
- Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.