„Ágústa Erla Andrésdóttir“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |

| Lína 14: | Lína 14: | ||
1. [[Tryggvi Sigurðsson (Oddsstöðum)|Tryggvi Sigurðsson]], f. 21. janúar 1957.
| 1. [[Tryggvi Sigurðsson (Oddsstöðum)|Tryggvi Sigurðsson]], f. 21. janúar 1957.

2. [[Ágúst Ingi Sigurðsson]] stýrimaður í Reykjavík, hafnsögumaður í Hafnarfirði, f. 13. nóvember 1959. Kona hans Eve Leplat.
| 2. [[Ágúst Ingi Sigurðsson]] stýrimaður í Reykjavík, hafnsögumaður í Hafnarfirði, f. 13. nóvember 1959. Kona hans Eve Leplat.

3. [[Andrés Þ. Sigurðsson (skipstjóri)|Andrés Þorsteinn Sigurðsson]] yfirhafnsögumaður, f. 7. desember 1962. Kona hans [[Ása S. | 3. [[Andrés Þ. Sigurðsson (skipstjóri)|Andrés Þorsteinn Sigurðsson]] yfirhafnsögumaður, f. 7. desember 1962. Kona hans [[Ása S. Jóhannesdóttir|Ása Svanhvít Jóhannesdóttir]].

4. [[Ólafía Ósk Sigurðardóttir]] grunnskólakennari, f. 16. október 1966. Fyrrum maður hennar [[Einar Sigþórsson]]. Síðari maður hennar [[Kári Hrafn Hrafnkelsson]].
| 4. [[Ólafía Ósk Sigurðardóttir]] grunnskólakennari, f. 16. október 1966. Fyrrum maður hennar [[Einar Sigþórsson]]. Síðari maður hennar [[Kári Hrafn Hrafnkelsson]].

5. [[Sigurður Sigurðsson (járnsmiður)|Sigurður Sigurðsson]] járnsmiður, f. 28. ágúst 1975. Kona hans [[Hildur Guðmundsdóttir]]. | 5. [[Sigurður Sigurðsson (járnsmiður)|Sigurður Sigurðsson]] járnsmiður, f. 28. ágúst 1975. Kona hans [[Hildur Guðmundsdóttir]]. | ||
Útgáfa síðunnar 30. júlí 2025 kl. 15:30

Ágústa Erla Andrésdóttir frá Reykjavík, húsfreyja, fiskiðnaðarkona fæddist þar 27. júní 1939 og lést 1. maí 2021.
Foreldrar hennar voru Andrés Óskar Ingimundarson verkamaður, f. 6. ágúst 1915 í Reykjavík, d. 26. febrúar 1973, og Pálína Ingunn Benjamínsdóttir húsfreyja, f. 4. apríl 1918 á Akureyri, d. 6. september 1974.
Ágústa Erla sótti vertíðarvinnu til Eyja frá 1956.
Þau Sigurður Helgi giftu sig 1960, eignuðust fimm börn. Þau bjuggu í fyrstu á Eystri Oddsstöðum, þá á Litlu-Grund við Vesturveg 24, en fluttu á Vestmannabraut 72 1966 og síðar að Áshamri 75.
Þau hjón fluttu til Reykjavíkur 1987 með Sigurð son sinn, bjuggu í Árbænum, en síðan á Kleppsvegi 4.
Sigurður Helgi lést 2007.
Ágústa Erla bjó síðast í Fróðengi 11 í Reykjavík.
Hún lést 2021.
I. Maður Ágústu Erlu, (6. janúar 1960), var Sigurður Tryggvason vélstjóri, f. 29. september 1937 í Vallanesi, d. 4. september 2007 á Landspítalanum.
Börn þeirra:
1. Tryggvi Sigurðsson, f. 21. janúar 1957.
2. Ágúst Ingi Sigurðsson stýrimaður í Reykjavík, hafnsögumaður í Hafnarfirði, f. 13. nóvember 1959. Kona hans Eve Leplat.
3. Andrés Þorsteinn Sigurðsson yfirhafnsögumaður, f. 7. desember 1962. Kona hans Ása Svanhvít Jóhannesdóttir.
4. Ólafía Ósk Sigurðardóttir grunnskólakennari, f. 16. október 1966. Fyrrum maður hennar Einar Sigþórsson. Síðari maður hennar Kári Hrafn Hrafnkelsson.
5. Sigurður Sigurðsson járnsmiður, f. 28. ágúst 1975. Kona hans Hildur Guðmundsdóttir.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Morgunblaðið 13. september 2007. Minning Sigurðar.
- Morgunblaðið 7. maí 2021. Minning Ágústu Erlu.
- Prestþjónustubækur.
- Tryggvi.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.