„Sigurður H. Karlsson (Stað)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip

Lína 1: Lína 1:
'''Sigurður Hróbjarts Karlsson''' togarasjómaður, farmaður fæddist 9. mars 1931 á [[Staður|Stað]] og lést 29. nóvember 2017.

'''Sigurður Hróbjarts Karlsson''' togarasjómaður, farmaður, hótelstarfsmaður fæddist 9. mars 1931 á [[Staður|Stað]] og lést 29. nóvember 2017.

Foreldrar hans voru [[Karl Sigurðsson (Litlalandi)|Karl Kjartan Sigurðsson]] skipstjóri frá [[Litlaland]]i, f. 16. nóvember 1905 á [[Oddsstaðir|Oddsstöðum]], d. 5. maí 1959, og kona hans [[Sigurbjörg Ingimundardóttir (Stað)|Sigurbjörg Ingimundardóttir]] húsfreyja, hótelrekandi, f. 1. júní 1909 í Fljótum í Skagafirði, d.  29. september 2003.

Foreldrar hans voru [[Karl Sigurðsson (Litlalandi)|Karl Kjartan Sigurðsson]] skipstjóri frá [[Litlaland]]i, f. 16. nóvember 1905 á [[Oddsstaðir|Oddsstöðum]], d. 5. maí 1959, og kona hans [[Sigurbjörg Ingimundardóttir (Stað)|Sigurbjörg Ingimundardóttir]] húsfreyja, hótelrekandi, f. 1. júní 1909 í Fljótum í Skagafirði, d.  29. september 2003.

Lína 22: Lína 22:
4. Halla María Sigurðardóttir, f. 20. mars 1965, búsett í Danmörku.

4. Halla María Sigurðardóttir, f. 20. mars 1965, búsett í Danmörku.

III. Síðari kona Sigurðar, (9. mars 1971), var [[Ragnhildur Steingrímsdóttir leikstjóri|Ragnhildur Steingrímsdóttir]] húsfreyja, leikkona, leikstjóri, f. 11. júní 1927, d. 25. júní 2009.

III. Síðari kona Sigurðar, (9. mars 1971), var [[Ragnhildur Steingrímsdóttir (leikstjóri)|Ragnhildur Steingrímsdóttir]] húsfreyja, leikkona, leikstjóri, f. 11. júní 1927, d. 25. júní 2009.

{{Heimildir|
{{Heimildir|
*Samantekt: [[Víglundur Þór Þorsteinsson]].
*Samantekt: [[Víglundur Þór Þorsteinsson]].

Núverandi breyting frá og með 29. nóvember 2025 kl. 18:34

Sigurður Hróbjarts Karlsson togarasjómaður, farmaður, hótelstarfsmaður fæddist 9. mars 1931 á Stað og lést 29. nóvember 2017.
Foreldrar hans voru Karl Kjartan Sigurðsson skipstjóri frá Litlalandi, f. 16. nóvember 1905 á Oddsstöðum, d. 5. maí 1959, og kona hans Sigurbjörg Ingimundardóttir húsfreyja, hótelrekandi, f. 1. júní 1909 í Fljótum í Skagafirði, d. 29. september 2003.

ctr
Sigurbjörg og Karl með Sigurð son sinn.

Sigurður var með foreldrum sínum á Stað í æsku, fluttist með þeim til Reykjavíkur 1939.
Hann fór snemma til sjós, slasaðist alvarlega á fæti við störf á togara og náði aldrei fullkomnum bata, stundaði þó farmennsku um árabil. Sigurður eignaðist fjögur börn með þrem konum.
Þau Ragnhildur giftu sig 1971, bjuggu í Eyjum um skeið. Þar vann hann með móður sinni við Hótel Berg. Þau Ragnhildur fluttust í Hveragerði, þá í Ólafsvík og að síðustu til Akureyrar, en Raghildur stjórnaði leiksýningum á þessum stöðum.
Ragnhildur lést 2009 og Sigurður 2017.

I. Barnsmóðir Sigurðar var Gígja Gísladóttir, f. 4. júní 1937.
Barn þeirra
1. Linda Laufey Sigurðardóttir, (skráir sig Linda Laufey Bragadóttir), f. 23. ágúst 1954.

II. Fyrri kona Sigurðar, (skildu 1968), var Solvejg Bisballey, af dönskum ættum. Hún býr í Danmörku.
Börn þeirra:
2. Rune Verner Sigurðsson vélstjóri, 27. apríl 1961 í Danmörku, fórst með Ófeigi VE 5. desember 2001.
3. Minný Bernódía Sigurðardóttir, f. 2. maí 1963, d. 11. janúar 1966.
4. Halla María Sigurðardóttir, f. 20. mars 1965, búsett í Danmörku.

III. Síðari kona Sigurðar, (9. mars 1971), var Ragnhildur Steingrímsdóttir húsfreyja, leikkona, leikstjóri, f. 11. júní 1927, d. 25. júní 2009.

Heimildir

Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.