„Sigfríð Valdimarsdóttir“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: 200px|thumb|''Sigfríð Valdimarsdóttir. '''Sigfríð Valdimarsdóttir''' húsfreyja, verslunarmaður, saumakona fæddist 27. september 1933 á Fáskrúðsfirði og lést 19. mars 2020.<br> Foreldrar hennar voru Valdimar Lúðvíksson, f. 1. ágúst 1894, d. 26. maí 1985, og Guðlaug Kristbjörg Sveinbjörnsdóttir, f. 28. janúar 1907, d. 22. janúar 1976.<br> Sigfríð eignaðist barn með Stefáni Guðna 1951.<br> Þau Guðmundur giftu...)
 
m (Verndaði „Sigfríð Valdimarsdóttir“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))

Útgáfa síðunnar 10. janúar 2026 kl. 14:50

Sigfríð Valdimarsdóttir.

Sigfríð Valdimarsdóttir húsfreyja, verslunarmaður, saumakona fæddist 27. september 1933 á Fáskrúðsfirði og lést 19. mars 2020.
Foreldrar hennar voru Valdimar Lúðvíksson, f. 1. ágúst 1894, d. 26. maí 1985, og Guðlaug Kristbjörg Sveinbjörnsdóttir, f. 28. janúar 1907, d. 22. janúar 1976.

Sigfríð eignaðist barn með Stefáni Guðna 1951.
Þau Guðmundur giftu sig, eignuðust sex börn.

Þau Sigfríð og Guðmundur bjuggu um tíma í Laugarási þar sem þau sáu um garðyrkjustöð, en árið 1955 fluttust þau til Vestmannaeyja þar sem þau bjuggu til ársins 1966, er þau fluttu til Hveragerðis og tóku við Garðyrkjustöðinni Gufudal. Sigfríð vann ýmis störf auk garðyrkjustarfanna, m.a. vann hún í Kaupfélagi Árnesinga og á Garðyrkjuskóla ríkisins á Reykjum. Lengst af vann hún þó á Elli- og dvalarheimilinu Ási þar sem hún sá fyrst og fremst um bakstur og matreiðslu, auk þess sem hún sinnti þar næturvakt í mörg ár.

I. Barnsfaðir Sigfríðar var Stefán Guðni Ásbjörnsson, f. 14. október 1931, d. 10. maí 1999.
Barn þeirra:
1. Ásdís Birna Stefánsdóttir, f. 30. september 1951.

II. Maður Sigfríðar var Guðmundur Einarsson garðyrkjumaður, f. 19. febrúar 1929, d. 17. desember 2004.
Börn þeirra:
2. Ragnhildur Guðmundsdóttir, f. 30. júlí 1953.
3. Hulda Guðmundsdóttir, f. 7. nóvember 1954, d. 16. mars 1999.
4. Einar Guðmundsson, f. 12. september 1956.
5. Valdimar Ingi Guðmundsson, f. 18. apríl 1960.
6. Hrefna Guðmundsdóttir, f. 9. febrúar 1965.
7. Ásta María Guðmundsdóttir, f. 17. september 1969.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.