Viktor Ágúst Sighvatsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 21. júní 2025 kl. 14:43 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 21. júní 2025 kl. 14:43 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Viktor Ágúst Sighvatsson“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit
Viktor Ágúst Sighvatsson.

Viktor Ágúst Sighvatsson röntgenlæknir í Svíþjóð, á Lsp og hjá Krabbameinsfélaginu, fæddist 21. janúar 1952.
Foreldrar hans voru Sighvatur Bjarnason bankamaður, bókari, aðalféhirðir, f. 5. júní 1919, d. 6. desember 1998, og kona hans Elín Jóhanna Ágústsdóttir húsfreyja, f. 12. júní 1925, d. 13. október 2021.

Þau Margrét giftu sig, eignuðust eitt barn. Þau skildu.
Þau Jóna Margrét giftu sig, eignuðust tvö börn.

I. Fyrrum kona Viktors er Margrét Jónsdóttir Ísdal, f. 9. mars 1956. Foreldrar hennar Jón Eiríkur Eggertsson Ísdal, f. 15. maí 1936, og Erla Engilbertsdóttir, f. 12. febrúar 1934, d. 23. júní 2022.
Barn þeirra:
1. Kristín Viktorsdóttir, f. 5. nóvember 1979.

II. Kona Viktors Ágústs er Jóna Margrét Jónsdóttir úr Garðabæ, húsfreyja, hjúkrunarfræðingur, f. 8. febrúar 1958. Foreldrar hennar Jón Ástráður Hjörleifsson, f. 2. mars 1930, d. 10. júní 2021, og Lilja Benjamína Jónsdóttir, f. 2. maí 1927.
Börn þeirra:
2. Ester Viktorsdóttir, f. 2. desember 1988.
3. Brynja Viktorsdóttir, f. 2. júní 1992.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.