Sigurfinnur Viðar Sigurfinnsson
Sigurfinnur Viðar Sigurfinnsson, netagerðarmaður, sjómaður, matsveinn, fæddist 9. apríl 1975.
Foreldrar hans Sigurfinnur Sigurfinnsson, myndlistarmaður, myndlistarkennari, meðhjálpari, f. 18. júní 1944, og kona hans Þorbjörg Júlíusdóttir, húsfreyja, móttökuritari, f. 2. febrúar 1948.
Börn Þorbjargar og Sigurfinns:
1. Gunnar Már Sigurfinnsson framkvæmdastjóri, f. 9. janúar 1965. Kona hans Linda Hængsdóttir.
2. Nanna Dröfn Sigurfinnsdóttir húsfreyja, leikskólastarfsmaður, f. 28. desember 1966. Maður hennar Óttar Gunnlaugsson.
3. Sigurfinnur Viðar Sigurfinnsson netagerðarmaður, sjómaður, matsveinn, f. 9. apríl 1975. Kona hans Ása Sigurðardóttir.
Þau Ása giftu sig, eignuðust fjögur börn. Þau búa við Bröttugötu 26.
I. Kona Sigurfinns er Ása Sigurðardóttir, húsfreyja, leikskólakennari, sérkennari í leikskóla, f. 2. október 1976.
Börn þeirra:
1. Elínborg Eir Sigurfinnsdóttir, f. 7. ágúst 1998.
2. Þorbjörg Lind Sigurfinnsdóttir, f. 30. nóvember 2003.
3. Ásdís Sara Sigurfinnsdóttir, f. 24. júlí 2009.
4. Sigurfinnur Óskar Sigurfinnsson, f. 24. nóvember 2011.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
- Sigurfinnur og Ása.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.