Sævar Ísfeld (Lundi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 18. júlí 2025 kl. 12:01 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 18. júlí 2025 kl. 12:01 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Sævar Ísfeld (Lundi)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Sævar Ísfeld rennismiður fæddist 29. september 1936 og lést 24. mars 1995.
Móðir hans Alda Ísfold Guðjónsdóttir, f. 13. janúar 1918, d. 20. september 1990. Kjörfaðir Sævars var Guðni Einarsson sjómaður, verkamaður, f. 26. apríl 1915, d. 12. ágúst 1985.

Barn Öldu og kjörbarn Guðna:
1. Sævar Ísfeld rennismiður, f. 29. september 1936, d. 24. mars 1995.
Börn Öldu og Guðna:
2. Einar Guðnason gröfustjóri, býr nú á Selfossi, f. 22. febrúar 1942.
3. Guðjón Borgar Guðnason gröfustjóri, f. 8. júní 1946.

Þau Inga Dóra giftu sig, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu síðast við Illugagötu 46.

I. Kona Sævars er Inga Dóra Guðmundsdóttir húsfreyja, fiskverkakona, f. 27. maí 1947.
Börn þeirra:
1. Sigurborg Ísfeld Sævarsdóttir, f. 31. janúar 1966.
2. Alda Guðný Zawadzka Sævarsdóttir, f. 21. júlí 1973.
3. Grétar Ísfeld Sævarsson, f. 12. júlí 1969, d. 15. október 2015.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.