Ágúst Marinósson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 3. ágúst 2025 kl. 11:52 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 3. ágúst 2025 kl. 11:52 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Ágúst Marinósson“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Ágúst Marinósson sjómaður, lögreglumaður fæddist 5. maí 1951.
Foreldrar hans voru séra Marinó Friðrik Kristinsson, f. 17. september 1910, d. 20. júlí 1994, og kona hans Þórhalla Gísladóttir húsfreyja, f. 11. mars 1920, d. 18. apríl 2006.

Þau Auður giftu sig, eignuðust tvö börn. Þau skildu.
Þau Elísabet Ósk hófu sambúð, eignuðust tvö börn. Þau búa á Sauðárkróki.

I. Fyrrum kona Ágústs er Auður Stefánsdóttir húsfreyja, verslunarmaður, f. 9. desember 1945.
Börn þeirra:
1. Ægir Ágústsson húsasmiður, nú öryrki á Selfossi, f. 18. júní 1972 í Eyjum. Sambýliskona er Ester Bragadóttir.
2. Ágúst Þór Ágústsson sjómaður, sendibílstjóri í Hafnarfirði, f. 16. apríl 1975 á Akureyri. Kona hans er Þórlaug Særún Sigbjartsdóttir.

II. Sambúðarkona Ágústs er Elísabet Ósk Arnardóttir úr Skagafirði, húsfreyja, f. 31. júlí 1953. Foreldrar hennar Örn Friðhólm Sigurðsson, f. 24. júlí 1921, d. 12. nóvember 1970, og Guðrún Erla Ásgrímsdóttir, f. 12. janúar 1927, d. 24. febrúar 2013.
Börn þeirra:
3. Óskar Páll Ágústsson, f. 11. júní 1988.
4. Helgi Ágústsson, f. 31. ágúst 1990.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.