Guðmundur Már Ástþórsson
Guðmundur Már Ástþórsson húsasmíðameistari, býr í Eyjum, fæddist 19. október 1961 í Eyjum.
Foreldrar hans Ástþór Runólfsson trésmiður í Rvk, f. 16. október 1936, d. 2. febrúar 2020, og kona hans Guðrún Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 24. desember 1935, d. 28. apríl 2007.
Börn Guðrúnar og Ástþórs:
1. Hildur Ástþórsdóttir húsfreyja, f. 31. maí 1959 í Reykjavík. Maður hennar Jóhann Ólafur Jónsson.
2. Guðmundur Már Ástþórsson f. 19. október 1961 í Eyjum. Fyrrum Kona hans Kristín Ósk Reynisdóttir. Unnusta hans Dagný Alda Steinsdóttir.
3. Hlín Ástþórsdóttir, f. 30. nóvember 1962 í Eyjum. Maður hennar Hrafnkell Marinósson.
4. Hulda Ástþórsdóttir, f. 15. september 1964 í Reykjavík. Maður hennar Aðalsteinn Guðmannsson.
5. Runólfur Þór Ástþórsson, f. 1. mars 1978. Kona hans Heiðrún Ólöf Jónsdóttir.
Þau Kristín Ósk giftu sig, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu í Rvk. Þau skildu.
Þau Dagný Alda unnast, hafa ekki eignast börn saman, en hún á tvö börn frá fyrra sambandi
I. Fyrrum kona Guðmundar Más er Kristín Ósk Reynisdóttir úr Rvk, fsteignasali, f. 15. júlí 1961. Foreldrar hennar Reynir Kristinsson, f. 5. september 1930, d. 25. febrúar 2008, og Guðríður Erna Haraldsdóttir, f. 17. október 1939, d. 13. júní 1977.
Börn þeirra:
1. Ástþór Reynir Guðmundsson, f. 6. nóvember 1978.
2. Ásdís Rut Guðmundsdóttir, f. 24. mars 1989.
3. Gísli Már Guðmundsson, f. 23. ágúst 1994.
II. Unnusta Guðmundar Más er Dagný Alda Steinsdóttir úr Keflavík, innanhússarkitekt, f. 29. janúar 1962.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Guðmundur Már.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.