Birgitta Bjarnadóttir
Birgitta Bjarnadóttir húsfreyja, hestatamningakona í Sumarliðabæ í Holtum, fæddist 21. maí 1994.
Foreldrar hennar Bjarni Óskarsson frá Hrauntúni 20, f. 10. júlí 1968, og sambúðarkona hans Hlín Albertsdóttir, f. 27. janúar 1972.
Þau Þorgeir hófu sambúð, hafa eignast tvö börn. Þau búa í Sumarliðabæ.
I. Sambúðarmaður Birgittu er Þorgeir Ólafsson úr Borgarnesi, bóndi, f. 4. október 1997. Foreldrar hans Ólafur Þorgeirsson, f. 1. september 1955, og Auður Ásta Þorsteinsdóttir, f. 26. júlí 1973.
Börn þeirra:
1. Kolbeinn Jarl Þorgeirsson, f. 8. nóvember 2022.
2. Elliði Þór Þorgeirsson, f. 29. apríl 2024.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Bjarni.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.