Jóna Ingvarsdóttir (Birtingarholti)
Jóna Ingvarsdóttir frá Birtingarholti, húsfreyja, fyrrum bankastarfsmaður og verslunarmaður, fæddist 25. júní 1939.
Foreldrar hennar voru Ingvar Þórólfsson frá Gerðakoti í Flóa, útgerðarmaður, húsasmiður, f. 27. mars 1896 að Króki þar, d. 13. apríl 1975, og kona hans Þórunn Friðriksdóttir frá Rauðhálsi í Mýrdal, húsfreyja, f. þar 28. apríl 1901, d. 13. júní 1972.
Börn Þórunnar og Ingvars:
1. Þórhildur Ingvarsdóttir húsfreyja í Mýrdal, f. 25. nóvember 1922, d. 8. ágúst 2000.
2. Þórunn Ingvarsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 6. desember 1923 í Birtingarholti, d. 6. október 2013.
3. Friðrik Ingvarsson í Bandaríkjunum, f. 2. apríl 1926, d. 17. janúar 2004.
4. Hulda Ingvarsdóttir Berndsen húsfreyja í Reykjavík, f. 10. maí 1927, d. 28. apríl 2000.
5. Vigfús Ingvarsson, f. 1. nóvember 1928.
6. Hafsteinn Ingvarsson tannlæknir, f. 12. október 1932 í Birtingarholti, d. 29. janúar 2014.
7. Hafdís Ingvarsdóttir húsfreyja, f. 2. mars 1935 í Birtingarholti, d. 26. janúar 1997.
8. Ingi Ingvarsson, f. 22. apríl 1937 í Birtingarholti, d. 14. ágúst 2018.
9. Jóna Ingvarsdóttir húsfreyja, f. 25. júní 1939 í Birtingarholti.
10. Þórólfur Ingvarsson sjómaður á Akureyri, f. 16. apríl 1944 í Birtingarholti, d. 20. júlí 2015.
Þau Guðni giftu sig, eignuðust fjögur börn. Þau búa í Rvk.
I. Maður Jónu er Guðni Marelsson frá Eyrarbakka, vélvirki hjá Héðni, f. 30. september 1937. Foreldrar hans Marel Oddgeir Þórarinsson, f. 9. mars 1898, d. 11. janúar 1981, og Sigríður Þórunn Gunnarsdóttir, f. 20. ágúst 1901, d. 27. júní 1996.
Börn þeirra:
1. Sigríður Merit Guðnadóttir, f. 9. desember 1957.
2. Ingunn Guðnadóttir, f. 3. ágúst 1959.
3. Guðfinnur Guðnason, f. 6. október 1960.
4. Guðni Guðnason, f. 2. maí 1964.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
- Jóna.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.