Ósk Þórðardóttir (tannlæknir)
Ósk Þórðardóttir húsfreyja, tannlæknir í Rvk fæddist 27. júní 1957 í Sætúni.
Foreldrar hennar Þórður Magnússon frá Skansinum, verktaki, bifreiðastjóri, f. 17. apríl 1933, d. 9. mars 2021, og kona hans Hrönn Vilborg Hannesdóttir frá Hæli, húsfreyja, f. 22. febrúar 1939.
Börn Vilborgar og Þórðar:
1. Hanna Margrét Þórðardóttir húsfreyja, skrifstofumaður, f. 24. maí 1955. Maður hennar er Óskar Valtýsson.
2. Ósk Þórðardóttir húsfreyja, tannlæknir í Reykjavík, f. 27. júní 1957 í Sætúni. Maður hennar er Kristinn Leifsson.
3. Guðbjörg Þórðardóttir húsfreyja, skrifstofumaður í Garðabæ, f. 5. mars 1964. Maður hennar var Viðar Einarsson.
4. Elín Þórðardóttir húsfreyja, skrifstofumaður í Kópavogi, f. 4. júní 1970. Sambýlismaður var Ísólfur Ásmundsson.
Þau Kristinn giftu sig, eignuðust eitt barn. Þau búa í Rvk.
I. Maður Óskar er Kristinn Ingi Leifsson úr Rvk, vélstjóri, f. 16. mars 1957. Foreldrar hans Leifur Einarsson, f. 2. maí 1925, d. 18. janúar 1992, og Ragna Aradóttir, f. 31. maí 1922, d. 4. mars 2000.
Barn þeirra:
1. Hrönn Kristinsdóttir, f. 12. febrúar 1984.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
- Ósk.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.