Margrét Ragnheiður Þorgrímsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 13. febrúar 2026 kl. 13:43 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 13. febrúar 2026 kl. 13:43 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Margrét Ragnheiður Þorgrímsdóttir“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Margrét Ragnheiður Þorgrímsdóttir.

Margrét Ragnheiður Þorgrímsdóttir fæddist að Staðarhóli í Deildardal í Skagafirði 17. desember 1932 og lést 31. janúar 2026 í Hraunbúðum.
Foreldrar hennar voru Kristjana Guðrún Tómasdóttir, f. 2. desember 1908, d. 21. nóvember 1975, og Þorgrímur Þorleifsson, f. 8. júní 1901, d. 11. maí 1988.

Margrét bjó í Hjarðarholti til 1948, er þau Gunnar hófu búskap. Þau giftu sig 1955, eignuðust þrjú börn. Hún vann m.a. í frystihúsinu, sláturhúsinu og kaupfélaginu á Hofsósi. Hún átti og rak sjoppu, sem líka var bensínstöð Esso. Þar seldi hún hefðbundinn sjoppuvarning auk alls kyns gjafavara, og leigði út vídeóspólur. Hún bryddaði upp á nýlundu; frönskum kartöflum og djúpsteiktum kjúklingabitum – og kryddið fékk hún í stórri fötu frá KFC í Hafnarfirði. Þau hjónin settu upp og ráku sólbaðsstofu, þar sem einnig var hægt að fara í gufubað. Margrét var söngelsk og var í Söngfélaginu Hörpu í mörg ár. Einnig var hún formaður Verkakvennafélagsins Bárunnar í nokkur ár um miðjan 7. áratuginn.
Þau Gunnar fluttu til Rvk 1993 eftir að hann missti aðra höndina í slysi. Hann lést 2007.
Hún var gangavörður í Austurbæjarskóla og þar vann hún þangað til hún fór á eftirlaun.
Margrét flutti á Hrafnistu í Hfirði og síðan til Eyja 2014.

I. Maður Margrétar var Gunnar Baldvinsson bóndi, f. 22. júlí 1925, d. 17. mars 2007. Foreldrar hans Jóna Geirmundardóttir, f. 19. ágúst 1887, d. 24. nóvember 1963, og Baldvin Sigurbjörn Ágústsson, f. 23. júlí 1895, d. 18. ágúst 1949.
Börn þeirra:
1. Trausti Baldvin Gunnarsson, f. 16. júní 1949.
2. Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, f. 5. mars 1955.
3. Gunnar Heiðar Gunnarsson, f. 14. desember 1965.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.