Sigtryggur Þór Benediktsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 13. febrúar 2026 kl. 13:55 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 13. febrúar 2026 kl. 13:55 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Sigtryggur Þór Benediktsson“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit

Sigtryggur Þór Benediktsson, temur hesta og selur, fæddist 5. nóvember 1971 í Eyjum.
Foreldrar hans Benedikt Sigmundsson sjómaður, múrari, f. 9. október 1950, og barnsmóðir hans Kristín Sigtryggsdóttir sjúkraliði, síðar í Noregi, f. 31. desember 1953 á Akureyri, d. 24. febrúar 2016.
Börn Ernu og Benedikts:
1. Hjördís Anna Benediktsdóttir húsfreyja, iðjuþjálfi, f. 15. febrúar 1976. Maður hennar er Svavar Guðfinnsson.
2. Þórdís Arna Benediktsdóttir húsfreyja, við nám í Danmörku, f. 31. janúar 1978. Maður hennar er Henrik Leander.
3. Árni Páll Benediktsson vélstjóri í Eyjum, síðar rafvirki hjá Orkuveitunni í Reykjavík, nú í Svíþjóð, f. 20. júní 1982. Sambýliskona er Helga Cosser.
Barn Benedikts með Kristínu Sigtryggsdóttur:
4. Sigtryggur Þór Benediktsson, f. 5. nóvember 1971 í Eyjum.

Þau Elisabeth Saga giftu sig, eignuðust tvö börn. Þau búa í Noregi.

I. Kona Sigtryggs er Elisabeth Saga, norsk, f. 4. apríl 1966.
Börn þeirra:
1. Kristín Saga Sigrtryggsdóttir, f. 11. febrúar 1991.
2. Liv Runa Sigtryggsdóttir, f. 9. nóvember 1992.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.