Hallgrímur Þórðarson

Hallgrímur Þórðarson var fæddur 7. febrúar 1926 og lést á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja 8. október 2013.. Kona hans var Guðbjörg Einarsdóttir. Þau bjuggu á Urðavegi 42 og á Heiðarvegi 56.
Hallgrímur rak Veiðarfæragerð Vestmannaeyja í fjöldamörg ár ásamt frænda sínum Guðjóni Magnússyni.
Hallgrímur var mikill söngmaður og tók virkan þátt í sönglífi í Vestmannaeyjum í áratugi. Hann var í Samkór Vestmannaeyja og síðan í Kór Landakirkju. Hann var einnig í veiðifélagi Ystakletts og dvaldi við lundaveiði stærstan hluta lundaveiðitímans.