Blik 1938, 2. tbl./Skólalok

Efnisyfirlit 1938



SKÓLALOK.

Gagnfræðaskóla kaupstaðarins var sagt upp sunnudaginn 1. maí.
Alls höfðu 63 nemendur stundað nám í skólanum þ.á. Próf þreyttu alls 55 nemendur. Allir stóðust prófin og hlutu margir háar einkunnir.
Þessir hlutu hæstar:

3.b.
Jóhann Vilmundarson8,04
Aðalsteinn Halldórsson7,87
Hermann Guðmundsson7,62
2.b.
Ólöf Árnadóttir9,68
Magnea Hannesdóttir9,65
Helgi Sæmundsson8,75
Leifur Eyjólfsson8,68
Þórunn Kristjánsdóttir8,67
Ásta Engilbertsdóttir8,41
1b.
Einar Torfason8,85
Árni Guðjónsson8,75
Sigurjón Kristinsson8,57
Borgþór Jónsson8,43
Sigurður Sveinbjarnarson8,43
Karólína Waagfjörð8,42
Einar Halldórsson8,25
Guðfinna Stefánsdóttir8,10
Jón Óli Elíasson8,02

Aðalprófdómarar voru sem að undanförnu: Haraldur Eiríksson rafvirki, Ástþór Matthíasson forstjóri og síra Sigurjón Árnason sóknarprestur.
Nemendur störfuðu ötult að ýmsum félagsmálum sínum. Þar ríkti mikill og góður félagsandi. Unglingarnir stunduðu útigöngur og útiíþróttir í frístundum.

Trúnaðarmenn skólans um ýmis störf við daglegan rekstur voru þessir:
Tímagæsla: Ísleifur Pálsson.
Bókavarsla: Leifur Eyjólfsson.
Umsjónarmaður 1. bekkjar: Borgþór Jónsson.
Umsjónarmaður 2. bekkjar: Þórunn Kristjánsdóttir.
Umsjónarmaður 3. bekkjar: Hermann Guðmundsson.

Öll ræktu þau störf sín af skyldurækni og viðurkenndi skól­inn það með bókagjöf til hvers þeirra.
Bindindisandi var mikill í skólanum og allir nemendur störfuðu í bindindisfélagi skólans.
Þá fórnuðu nemendur miklu starfi fyrir framtíðarmál skólans, byggingarmálið, með því að selja happdrættismiða byggingarsjóðsins. Kann skólinn þeim bestu þakkir fyrir það, og svo góða ástundun við námið og prúða framkomu og siðprýði í sambúð og samstarfi.
Besta eign hvers skóla eru góðir nemendur.

Skólastjóri.
                               ———————————
Ábyrg ritstjórn:
Stjórn Málfundafélags Gagnfræðaskólans í Vestmannaeyjum.
Eyjaprentsmiðjan h.f.






ctr


Copyright © Vestmannaeyjabær 2005


... þó á Höfðanum þjóti ein þrettán stig ...