Dagsbrún

Dagsbrún t.h. á myndinni.
Dagsbrún t.h. á myndinni.

Húsið Dagsbrún stóð við Kirkjuveg 8b. Það fór undir hraun í gosinu 1973. Árni J. Johnsen rak um nokkurra ára skeið á jarðhæðinni Blómaverslunina Happó, ásamt Ingibjörgu, dóttur sinni sem síðan tók alfarið við rekstri verslunarinnar og var hún eftir það kennd við hana. Á sjötta áratug síðustu aldar var húsið notað sem verbúð og fékk þá viðurnefnið Kórea en á þeim árum mun oft hafa verið þar róstusamt og þótti einhverjum minna á Kóreustríðið sem þá stóð sem hæst.

Copyright © Vestmannaeyjabær 2005


... þó á Höfðanum þjóti ein þrettán stig ...