Áki Heinz Haraldsson
Áki Heinz Haraldsson afgreiðslumaður, síðan þjónustufulltrúi hjá Bænum, fæddist 4. febrúar 1947.
Foreldrar hans Haraldur Óskar Guðnason bókavörður, f. 30. september 1911, d. 28. janúar 2007, og kona hans Ilse Emilie Frieda Guðnason frá Þýskalandi, húsfreyja, starfsmaður bókasafnsins í Eyjum, f. 24. ágúst 1914, d. 27. febrúar 2004.
Börn Ilse og Haraldar:
1. Áki Heinz Haraldsson, f. 4. febrúar 1947. Fyrrum kona hans Kristín Gísladóttir, f. 10. júlí 1955.
2. Torfi Sigurbjörn Haraldsson, f. 5. apríl 1950. Kona hans Binna Hlöðversdóttir, látin.
Þau Kristín giftu sig, eignuðust eitt barn. Þau skildu.
Áki býr við Hásteinsveg 60.
I. Fyrrum kona Áka er Kristín Gísladóttir frá Selfossi, húsfreyja, f. 10. júlí 1955. Foreldrar hennar Gísli Guðjónsson, f. 3. júlí 1923, d. 25. maí 2008, og Sigríður Magnúsdóttir, f. 1. nóvember 1924, d. 13. júlí 1987.
Barn þeirra:
1. Sigríður Ákadóttir húsfreyja, skrifstofustjóri, f. 24. desember 1976.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Áki.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.