Ástþór Jóhannsson
Ástþór Jóhannsson, grafískur hönnuður, rak auglýsingastofu, er leiðsögumaður, fæddist 21. júní 1955.
Foreldrar hans Jóhann Friðfinnsson kaupmaður, framkvæmdastjóri, forstöðumaður, f. 3. nóvember 1928, d. 13. september 2001, og kona hans Svanhildur Sigurjónsdóttir húsfreyja, hjúkrunarfræðingur, f. 16. apríl 1932, d. 20. september 2012.
Börn Svanhildar og Jóhanns:
1. Ástþór Jóhannsson, grafiskur hönnuður, leiðsögumaður, f. 21. júní 1955. Kona hans Katrín Ævarsdóttir.
2. Kristín Jóhannsdóttir, menningarfulltrúi, safnvörður, f. 11. janúar 1960.
3. Jóhann Þorkell Jóhannsson, flugstjóri, f. 11. maí 1961. Kona hans Hildur Halldórsdóttir.
4. Davíð Jóhannsson, viðskiptafræðingur, ráðgjafi, f. 21. júní 1965. Kona hans Ingrid Kertelheim.
5. Vigdís Jóhannsdóttir kennari, f. 3. október 1969. Maður hennar Marteinn Jónasson.
Barn Jóhanns og Ernu Bjargar Vigfúsdóttur var:
6. Hrafnhildur Jóhannsdóttir, f. 8. ágúst 1947, d. 16. ágúst 2019.
Þau Katrín giftu sig, eignuðust tvö börn. Þau búa í Rvk.
I. Kona Ástþórs er Katrín Ævarsdóttir, húsfreyja, klæðskeri, f. 7. janúar 1954. Foreldrar hennar Ævar Jónsson, f. 14. febrúar 1932, d. 9. febrúar 2009, og Anja Iris Katarinar Honkanen, f. 19. janúar 1933, d. 19. nóvember 2022.
Börn þeirra:
1. Sara Ástþórsdóttir, f. 6. júní 1974.
2. Svanhildur Anja Ástþórsdóttir, f. 26. apríl 1976.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Ástþór.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.