Ísleifur Ástþórsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Ísleifur Ástþórsson vélvirkjameistari fæddist 26. mars 1958.
Foreldrar hans Ástþór Eydal Ísleifsson vélstjóri, f. 9. júlí 1933, og kona hans Ester Zóphoníasdóttir húsfreyja, fiskverkakona, f. 26. október 1935, d. 18. apríl 2021.

Börn Esterar og Ástþórs:
1. Ásta Ástþórsdóttir skrifstofumaður, f. 7. mars 1955. Barnsfaðir hennar Kristinn Árni Egilsson. Maður hennar Kristján Þór Kristjánsson.
2. Óli Rúnar Ástþórsson framkvæmdastjóri, f. 13. janúar 1957. Fyrrum kona hans Anna María Snorradóttir. Sambúðarkona hans Helga Sigurðardóttir.
3. Ísleifur Ástþórsson vélvirki, f. 26. mars 1958. Kona hans Sigrún Ólöf Sigurðardóttir.
4. Friðrik Bergþór Ástþórsson rafvirki, f. 23. september 1962. Kona hans Guðrún Eylín Magnúsdóttir.

Þau Sigrún Ólöf giftu sig, eignuðust fjögur börn. Þau búa á Selfossi.

I. Kona Ísleifs er Sigrún Ólöf Sigurðardóttir frá Seyðisfirði, húsfreyja, verkakona, f. 23. september 1960. Foreldrar hennar Sigurður Júlíusson, f. 25. júní 1927, d. 9. október 1991, og Ingrid Brandt frá Þýskalandi, húsfreyja, f. 5. október 1936.
Börn þeirra:
1. Ástþór Ísleifsson, f. 31. mars 1979.
2. Ingþór Ísleifsson, f. 31. mars 1979.
3. Albert Ísleifsson, f. 26. september 1991, d. 9. júlí 2019.
4. Bjarki Ísleifsson, f. 30. nóvember 1995.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.