Ívar Torfason

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Ívar Torfason sjómaður, skipstjóri á Herjólfi, síðan sjómaður á Sigurbjörgu VE, fæddist 26. nóvember 1977.
Foreldrar hans Torfi Haraldsson vigtarmaður, ættfræðingur, f. 5. apríl 1950, og kona hans Binna Hlöðversdóttir húsfreyja, þroskaþjálfi, f. 29. október 1946, d. 17. febrúar 2021.

Þau Sirrý Björt giftu sig, eignuðust sjö börn. Þau búa við Bessastíg 12.

I. Kona Ívars er Sirrý Björt Lúðvíksdóttir húsfreyja, sjúkraliði, f. 1. ágúst 1991.
Börn þeirra:
1. Ísalind Ívarsdóttir, f. 29. ágúst 2013.
2. Ilse Ívarsdótttir, f. 19. maí 2015.
3. Oktavíus Ívarsson, f. 28. nóvember 2016.
4. Ísis Birna Ívarsdóttir, f. 27. apríl 2018.
5. Tíberíus Torfi Ívarsson, f. 30. september 2020.
6. Lúðvík Hafsteinn Ívarsson, f. 30. september 2020.
7. Marín Rós Ívarsdóttir, f. 14. september 2022.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.