Adólf Þór Guðmannsson

From Heimaslóð
Jump to navigation Jump to search

Adólf Þór Guðmannsson fæddist 23. júlí 1951 og lést 15. janúar 1997.
Foreldrar hans voru Guðmann Adólf Guðmundsson sjómaður, vélstjóri, f. 4. apríl 1914 í Hjálmholti, d. 4. nóvember 1997, og Ásta Þórhildur Sæmundsdóttir frá Draumbæ, f. 27. janúar 1918, d. 4. janúar 1996.

Börn Ástu og Guðmanns:
1. Fjóla Guðmannsdóttir, f. 24. september 1940 í Draumbæ, d. 8. maí 2018. Maður hennar Einar Indriðason.
2. Guðfinnur Guðmannsson, f. 7. júní 1948 í Sandprýði. Sambýliskona Eyrún Sæmundsdóttir.
3. Adólf Þór Guðmannsson, f. 23. júlí 1951 á Sjúkrahúsinu, d. 15. janúar 1997.

Adólf Þór var ókvæntur og barnlaus. Hann bjó hjá foreldrum sínum í Sandprýði við Bárustíg 16b.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.