Aldís Helga Egilsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Aldís Helga Egilsdóttir viðskiptafræðingur, vinnur hjá Deloiette, fæddist 14. maí 1979.
Foreldrar hennar Egill Jónsson verkstjóri, slippstjóri, f. 8. maí 1942, og Jóhanna Helena Weihe húsfreyja, f. 7. maí 1949.

Börn Helenu og Egils:
1. Guðjón Egilsson, f. 18. september 1969. Sambúðarkona hans Rósa Hlín Óskarsdóttir.
2. Perla Björk Egilsdóttir, 8. september 1971. Maður hennar Sigurður Freyr Magnússon.
3. Jón Egilsson, f. 1. desember 1972. Fyrrum kona hans Margrét Pálsdóttir. Sambúðarkona hans Lilja Brynja Skúladóttir.
4. Egill Egilsson, f. 31. desember 1977, d. 18. ágúst 1978.
5. Aldís Helga Egilsdóttir, f. 14. maí 1979. Sambúðarmaður hennar Magnús Ágúst Skúlason.
6. Eygló Egilsdóttir, f. 27. júlí 1983. Sambúðarmaður hennar Garðar Heiðar Eyjólfsson.

Þau Magnús Ágúst hófu sambúð, eignuðust tvö börn. Þau búa í Kópavogi.

I. Sambúðarmaður Aldísar Helgu er Magnús Ágúst Skúlason, f. 24. febrúar 1981. Foreldrar hans Jónína Magnúsdóttir, f. 26. maí 1955, og Skúli Tryggvason, f. 25. mars 1958, d. 30. október 1998.
Börn þeirra:
1. Lilja Dögg Magnúsdóttir, f. 19. september 2013.
2. Birta Lind Magnúsdóttir, f. 8. mars 2016.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.