Alfreð Kristinsson (Norðurgarði)

From Heimaslóð
Jump to navigation Jump to search

Alfreð Kristinsson frá Norðurgarði, öryrki fæddist 29. nóvember 1939.
Foreldrar hans voru Gísli Kristinn Aðalsteinsson bóndi, verkamaður, f. 31. desember 1903 í Efra-Haganesi í Haganesvík, Skagaf., d. 13. júní 1963, og kona hans Guðbjörg Sigríður Einarsdóttir frá Norðurgarði húsfreyja, f. þar 21. desember 1905, d. 12. ágúst 1972.

Börn Guðbjargar og Kristins:
1. Ástrós Eyja Kristinsdóttir, f. 4. nóvember 1933 í Norðurgarði, d. 31. mars 2012.
2. Sigurgeir Sigurður Kristinsson, f. 6. desember 1935 í Norðurgarði, d. 18. febrúar 2016.
3. Guðbjartur Kristinn Kristinsson, f. 12. apríl 1937 í Norðurgarði, d. 3. maí 2015.
4. Guðbrandína Sveinsína Kristinsdóttir, f. 19. júlí 1938 í Norðurgarði.
5. Alfreð Kristinsson, f. 29. nóvember 1939 í Norðurgarði, d. 10. september 1974.
6. Árný Ingiríður Kristinsdóttir, f. 20. desember 1940 í Norðurgarði.
7. Ásta Guðfinna Kristinsdóttir, f. 18. september 1945 í Norðurgarði.
Fósturbarn hjónanna var
8. Ásta Margrét Sigurðardóttir húsfreyja, ræstitæknir í Reykjavík, f. 26. september 1924 á Seljalandi, d. 19. nóvember 1995. Alfreð dvaldi að síðustu á Kópavogshæli.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.