Björk Breiðfjörð Helgadóttir
Björk Breiðfjörð Helgadóttir húsfreyja, starfsmaður hjá dvalarheimili aldraðra á Húsasvík, fæddist 19. febrúar 1959 í Helli.
Foreldrar hennar Elsa Sigurðardóttir frá Helli, húsfreyja, f. 4. nóvember 1922, d. 7. júní 1997, og Helgi Breiðfjörð Jónasson frá Húsavík við Skjálfanda, sjómaður, verkamaður, f. 5. september 1927, d. 11. júní 1991.
Börn Elsu og Helga:
1. Björk Breiðfjörð Helgadóttir húsfreyja, starfsmaður hjá dvalarheimili aldraðra á Húsavík, f. 19. febrúar 1959 í Helli. Maður hennar Eiríkur Marteinsson, látinn.
2. Helga Breiðfjörð Helgadóttir húsfreyja, sjúkraliði í Svíþjóð, f. 19. jan. 1960 í Eyjum. Fyrrum maður hennar Kristján Þór Þórhallsson.
3. Viðar Breiðfjörð Helgason lyftaramaður, myndlistamaður, bæjarlistamaður í Eyjum, f. 31. maí 1962 á Húsavík. Ókv.
4. Elfa Breiðfjörð Helgadóttir húsfreyja, sjúkraliði á Akureyri, f. 19. júní 1964 á Húsavík. Fyrrum maður hennar Ásgeir Guðmundsson.
5. Oddfríður Breiðfjörð Helgadóttir húsfreyja, starfsmaður hjá Dvalarheimili aldraðra á Húsavík, f. 6. ágúst 1965 á Húsavík. Sambýlismaður hennar Ómar Egilsson.
Börn Elsu:
6. Sverrir Hákonarson sjómaður, matsveinn í Keflavík, f. 10. jan. 1941 í Helli, d. 30. júlí 2015. Kona hans Ásdís Kristinsdóttir.
7. Dóróthea Sigríður Róbertsdóttir húsfreyja, saumakona í Reykjavík, f. 1. okt. 1950 í Helli. Maður hennar Sverrir Jensson.
Þau Eiríkur giftu sig, eignuðust ekki börn saman. Þau bjuggu á Húsavík við Skjálfanda.
I. Maður Bjarkar var Eiríkur Marteinsson sjómaður, f. 19. júlí 1948, d. 9. janúar 2003. Foreldrar hans Hermína Eiríksdóttir, f.13. október 1913, d. 24. júlí 1993, og Marteinn Steingrímsson, f. 2. ágúst 1913, d. 28. júní 2004.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Björk.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.