Bjarki Guðnason

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Bjarki Guðnason svæðisstjóri Eimskips í Eyjum 2006-2017, nú sölustjóri hjá Eimskip í Rvk, fæddist 27. nóvember 1972.
Foreldrar hans Guðni Ólafsson, skipstjóri, f. 15. ágúst 1943, d. 20. ágúst 1999, og Gerður Sigríður Sigurðardóttir, húsfreyja, myndlistarmaður, f. 27. desember 1944.

Börn Gerðar og Guðna:
1. Agnar Guðnason skipstjóri, f. 11. febrúar 1966. Kona hans Svanhvít Yngvadóttir.
2. Sigurður Óli Guðnason vélfræðingur í Hafnarfirði, f. 13. janúar 1968. Kona hans Kristín Fjeldsted.
3. Bjarki Guðnason sölustjóri hjá Eimskip í Reykjavík, f. 27. nóvember 1972. Kona hans Rakel Einarsdóttir.
4. Ragnheiður Guðfinna Guðnadóttir sálfræðingur, húsfreyja, f. 27. janúar 1980. Barnsfeður hennar Baldur Rafn Gylfason og Tryggvi Þór Hafstein. Maður hennar Reynir Finndal Grétarsson.

Þau Rakel giftu sig, eignuðust eitt barn og hún á barn frá fyrra sambandi.

I. Kona Bjarka er Rakel Einarsdóttir frá Grindavík, húsfreyja, starfsmaður Bláa lónsins, f. 9. mars 1977. Foreldrar hennar Einar Björn Bjarnason, f. 23. nóvember 1949, og Sæunn Kristinsdóttir, f. 11. júní 1953.
Barn þeirra:
1. Adam Einar Bjarkason, f. 19. ágúst 2003.
Barn Rakelar:
2. Sæunn Ása Ágústsdóttir, f. 20. deseber 1996.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.