Bryndís Bjarnason (kennari)
Bryndís Bjarnason húsfreyja, kennari fæddist 30. mars 1957.
Foreldrar hennar voru Hörður Hjálmarsson Bjarnason, símvirki, símstöðvarstjóri, húsvörður, f. 29. júlí 1928, d. 15. júní 1995, og kona hans Bryndís Bjarnason húsfreyja, f. 11. febrúar 1926, d. 30. ágúst 2017.
Börn Bryndísar og Harðar:
1. Camilla Bjarnason guðfræðinemi (stud. theol.), síðast í Garðabæ, f. 8. mars 1949, d. 7. maí 1999. Maður hennar Garðar Sverrisson.
2. Pétur Bjarnason sjávarútvegsfræðingur, framkvæmdastjóri. Kona hans Herdís S. Gunnlaugsdóttir.
3. Elísabet Bjarnason húsfreyja, starfsmaður í Tjaldanesi, Mos., f. 8. apríl 1953, d. 15. ágúst 2020. Barnsfaðir hennar Jón Norðkvist Viggósson. Barnsfaðir hennar Sigurður Högni Hauksson. Maður hennar Ingi Bjarnar Guðmundsson.
4. Bryndís Bjarnason kennari, f. 30. mars 1957. Maður hennar Þórður Skúlason.
5. Hildur Bjarnason húsfreyja, BA-próf í sálfræði, f. 23. nóvember 1962. Fyrrum maður hennar Jean Posocco. Maður hennar Ómar Þór Halldórsson.
6. Hörður Bjarnason íþróttafræðingur, f. 8. október 1964. Fyrrum kona hans Kristín Ragna Pálsdóttir. Kona hans Hrönn Benediktsdóttir.
Þau Þórður giftu sig, eignuðust tvö börn. Þau búa á Ísafirði.
I. Maður Bryndísar er Þórður Jóakim Skúlason frá Ísafirði, rafvirki hjá Orkubúi Vestfjarða, f. 10. október 1956. Foreldrar hans Skúli Þórður Skúlason, f. 28. maí 1931, og Ólöf María Jóakimsdóttir, f. 24. desember 1927, d. 18. janúar 2025.
Börn þeirra:
1. Ottó Þórðarson, f. 10. apríl 1975.
2. Skúli Þórðarson, f. 6. október 1981.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Bryndís.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.