Bryndís Eiríksdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Sólveig Bryndís Eiríksdóttir húsfreyja, stuðningsfulltrúi á sambýli fatlaðra fæddist 16. júlí 1959.
Foreldrar hennar voru Eiríkur Sigurðsson frá Hruna, sjómaður, útgerðarmaður, verkamaður, bifreiðastjóri, f. þar 31. janúar 1931, d. 28. nóvember 2007, og kona hans Sigríður Sæunn Sigurðardóttir frá Ísafirði, húsfreyja, leikskólastarfsmaður, f. þar 20. febrúar 1933.

Börn Sigríðar og Eiríks:
1. Gísli Sigurður Eiríksson vélstjóri, kennari við Framhaldsskólann í Eyjum, f. 13. apríl 1951. Kona hans er Sigþóra Jónatansdóttir.
2. Margrét Vigdís Eiríksdóttir húsfreyja, félagsliði við heimahjúkrun, f. 4. desember 1952. Maður hennar er Sigurður Örn Karlsson.
3. Elísabet Guðfinna Eiríksdóttir húsfreyja, dagmóðir í Mosfellsbæ, f. 8. febrúar 1955. Maður hennar er Björn Heimir Sigurbjörnsson.
4. Sólveig Bryndís Eiríksdóttir húsfreyja, starfskona á sambýli fatlaðra, f. 16. júlí 1959.
5. Þröstur Gunnar Eiríksson sjómaður, iðnverkamaður á Selfossi, f. 4. ágúst 1966. Fyrri kona hans var [[[Svanhildur Svansdóttir]]. Síðari kona hans er Svetlana Balinskaya.

Bryndís eignaðist barn með Árna 1980.
Þau Gunnar hófu sambúð, hafa ekki eignast börn saman.

I. Barnsfaðir Bryndísar er Árni Gunnarsson, f. 19. október 1955.
Barn þeirra:
1. Gunnar Árnason, f. 14. janúar 1980.

II. Sambúðarmaður Bryndísar er Gunnar Guðjónsson frá Selfossi, vélamaður, f. 18. júlí 1958. Foreldrar hans Guðjón Jósefsson, f. 16. ágúst 1928, d. 2. febrúar 2014, og Vilborg Sigurðardóttir, f. 15. maí 1934.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.