Brynjar Karl Óskarsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Brynjar Karl Óskarsson, verkamaður, yfirmaður flutningsmála hjá Laxey, fæddist 4. janúar 1991.
Foreldrar hans Óskar Freyr Brynjarsson, rafvirkjameistari, f. 18. desember 1961, og Ólafía Birgisdóttir, húsfreyja, starfsmaður í leikskóla, f. 26. janúar 1963.

Börn Ólafíu og Óskars:
1. Davíð Þór Óskarsson verkamaður, f. 21. september 1983. Kona hans Birna Vídó Þórsdóttir Sigurgeirssonar.
2. Ester Óskarsdóttir skrifstofumaður, f. 11. maí 1988. Maður hennar Magnús Stefánsson frá Fagraskógi, Eyjaf.
3. Brynjar Karl Óskarsson verkamaður hjá Hafnareyri, f. 4. janúar 1991. Fyrrum sambúðarkona Sandra Gísladóttir Magnússonar.

Þau Sandra hófu sambúð, eignuðust eitt barn. Þau skildu.
Þau Emelía Dögg hófu sambúð, hafa eignast eitt barn. Þau búa við Boðaslóð 19.

I. Fyrrum sambúðarkona Brynjars er Sandra Gísladóttir, húsfreyja, leikskólakennari, f. 15. júlí 1992.
Barn þeirra:
1. Lilja Rut Brynjarsdóttir, f. 15. ágúst 2016.

II. Sambúðarkona Brynjars Karls er Emelía Dögg Sigmarsdóttir frá Húsavík, húsfreyja, heilsunuddari, f. 17. janúar 1990. Foreldrar hennar Sigmar Arnórsson, f. 18. júní 1960, og Hafdís Kristjánsdóttir, f. 6. ágúst 1965.
Barn þeirra:
2. Óskírð stúlka, f. 17. apríl 2025.



Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.