Einar Páll Pálsson
Einar Páll Pálsson húsasmiður fæddist 24. júní 1986.
Foreldrar hans Páll Rúnar Pálsson iðnrekstarfræðingur, framkvæmdastjóri, f. 13. desember 1964, og sambúðarkona hans Sigríður Einarsdóttir húsfreyja, sjúkraliði, vinnur við heimahjúkrun, f. 29. desember 1957.
Þau Sara giftu sig, eignuðust eitt barn, og Sara átti barn frá fyrra sambandi. Þau skildu.
Þau Aldís Eyja giftu sig, hafa ekki eignast börn saman.
I. Fyrrum kona Einars Páls er Sara Björg Pétursdóttir úr Rvk, f. 10. ágúst 1988. Foreldrar hennar Pétur Jónsson, f. 30. júlí 1963, og Sigrún Bryndís Gunnarsdóttir, f. 7. september 1954.
Barn þeirra:
1. Kristín Svala Einarsdóttir, f. 25. ágúst 2009.
Barn Söru Bjargar er
2. Kamilla Sif Einarsdóttir, f. 21. maí 2007.
II. Kona Einars Páls er Aldís Eyja Einarsdóttir, f. 29. desember 1994. Foreldrar hennar Einar Ólafur Karlsson, f. 27. nóvember 1965, og Jófríður Leifsdóttir, f. 8. nóvember 1974.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
- Sigríður.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.