Elín Sighvatsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Elín Sighvatsdóttir, lærð saumakona, ritari í Lsp, nú skrifstofumaður fæddist 1. nóvember 1961.
Foreldrar hennar voru Sighvatur Bjarnason bankamaður, bókari, aðalféhirðir, f. 5. júní 1919, d. 6. desember 1998, og kona hans Elín Jóhanna Ágústsdóttir húsfreyja, f. 12. júní 1925, d. 13. október 2021.

Börn Elínar og Sighvats:
1. Bjarni Sighvatsson útvarpsvirki, skrifstofumaður, f. 19. júlí 1949 á Aðalbóli. Kona hans Áróra Guðrún Friðriksdóttir.
2. Gísli Sighvatsson menntaskólakennari, f. 21. október 1950 á Hásteinsvegi 9. d. 27. maí 1987. Kona hans Ólöf Helga Þór.
3. Viktor Ágúst Sighvatsson læknir, f. 21. janúar 1952 á Hásteinsvegi 58. Fyrrum kona Margrét Ísdal. Kona hans Jóna Margrét Jónsdóttir.
4. Ásgeir Sighvatsson rafvirki, f. 15. nóvember 1955. Kona hans Hilda Torres.
5. Stúlka, f. 31. janúar 1960, d. sama dag.
6. Elín Sighvatsdóttir ritari á Landspítala, f. 1. nóvember 1961.
Börn Sighvats frá fyrra hjónabandi hans:
7. Kristín Sighvatsdóttir, bjó í Bandaríkjunum, f. 25. september 1942, d. 26. október 2012. Maður hennar Charles Lynch.
8. Bryndís Sighvatsdóttir, f. 3. júní 1945 d. 30. október 1945.

Elín er ógift og barnlaus. Hún býr í Rvk.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.