Ella Þórhallsdóttir
Ella Þórhallsdóttir húsfreyja, lífeindafræðingur fæddist 24. apríl 1957 í Rvk.
Foreldrar hennar Þórhallur Þrastar Jónsson bæjarverkfræðingur, f. 7. febrúar 1931, d. 29. apríl 2018, og kona hans Elín Ósk Guðjónsdóttir húsfreyja, kennari, f. 11. ágúst 1928, d. 20. febrúar 2012.
Börn þeirra:
1. Sólveig Þórhallsdóttir, hjúkrunarfræðingur, f. 13. janúar 1953 í Khöfn. Maður hennar Lárus Einarsson, rafmagnsverkfræðingur.
2. Björn Þrastar Þórhallsson, tannlæknir, f. 3. september 1955 í Rvk. Kona hans Heiðrún Hákonardóttir, kennari.
3. Ella Þórhallsdóttir, lífeindafræðingur, f. 24. apríl 1957 í Rvk. Maður hennar Pjetur G. Hjaltason, kerfisforritari.
4. Sigríður Þórhallsdóttir, sjúkraliði, ljósmóðir, f. 22. desember 1958. Maður hennar Guðbjörn Samsonarson, vélvirki.
5. Páll Guðjón Þórhallsson, lögfræðingur, f. 5. júní 1960 í Rvk. Kona hans Ásdís Gíslason, markaðsfræðingur, upplýsingafulltrúi.
Þau Pjetur giftu sig, eignuðust þrjú börn. Þau búa á Seltjarnarnesi.
I. Maður Ellu er Pjetur G. Hjaltason úr Kópavogi, kerfisforritari, f. 6. desember 1956. Foreldrar hans eru Hjalti Einarsson, f. 6. maí 1929, d. 3. október 2004, og Guðný Málfríður Pálsdóttir, f. 2. júlí 1929, d. 17. febrúar 2005.
Börn þeirra:
1. Þórhallur Páll Pjetursson, f. 31. júlí 1982.
2. Hallgrímur Jón Pjetursson, f. 4. febrúar 1986.
3. Pjetur Pjetursson, f. 10. desember 1996.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Ella.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.