Eydís Eyjólfsdóttir (Litlu-Löndum)

From Heimaslóð
Jump to navigation Jump to search

Eydís Eyjólfsdóttir, húsfreyja, skrifstofustjóri fæddist 17. mars 1970.
Foreldrar hennar Anna Sigmarsdóttir, húsfreyja, saumakona, f. 3. nóvember 1942, d. 4. maí 2014, og sambúðarmaður hennar Eyjólfur Eðvald Konráðsson, verkamaður, f. 6. desember 1944.

Eydís er viðskiptafræðingur, með MA-próf í opinberri stjórnsýslu. Hún vann í forsætisráðuneytinu í Rvk í 16 ár, hefur verið skrifstofustjóri hjá sýslumanninum í Norðurlandi-eystra frá 2022.

Þau Björn hófu sambúð, eignuðust tvö börn. Þau skildu.
Þau Halldór Kristinn hófu sambúð, eignuðust ekki börn saman. Þau skildu.

I. Fyrrum sambúðarmaður Eydísar er Björn Guðmundsson, rennismiður, f. 4. október 1960. Foreldrar hans Guðmundur Vigfússon, f. 30. mars 1927, d. 1. janúar 2020, og Guðveig Fjóla Guðmundsdóttir, f. 1. júní 1935, d. 27. október 2024.
Börn þeirra:
1. Fjóla Björnsdóttir, f. 6. september 1992.
2. María Björnsdóttir, f. 17. júlí 1996.

II. Fyrrum sambúðarmaður Eydísar er Halldór Kristinn Jónsson, viðskiptafræðingur, vinnur í húgbúnaðargeiranum, f. 9. júní 1964. Foreldrar hans Jón Hans Rafn Jóhannsson, f. 10. júlí 1942, og Guðmunda Halldórsdóttir, f. 23. mars 1944.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.