Gísli Matthías Sigmarsson (vélvirki)
Gísli Matthías Sigmarsson vélvirki, sérfræðingur hjá Veitum í Rvk, fæddist 5. febrúar 1971.
Foreldrar hans Sigmar Þór Sveinbjörnsson, sjómaður, stýrimaður, umdæmisstjóri Siglingastofnunar ríkisins, f. 23. mars 1946, og kona hans Kolbrún Ósk Óskarsdóttir, húsfreyja, ritari, f. 29. september 1950.
Börn Kolbrúnar og Sigmars:
1. Gísli Matthías Sigmarsson vélvirki, sérfræðingur hjá Veitum í Rvk, f. 5. febrúar 1971. Kona hans er Hrund Snorradóttir Óskarssonar.
2. Óskar Sigmarsson rafmagnstæknifræðingur, f. 6. janúar 1976. Kona hans Júlía Pálmadóttir Sighvats.
3. Harpa Sigmarsdóttir leikskólakennari, f. 22. október 1981. Maður hennar Þór Sæþórsson.
Þau Hrund giftu sig, eignuðust þrjú börn. Þau búa í Rvk.
I. Kona Gísla er Hrund Snorradóttir, húsfreyja, viðskiptafræðingur, vinnur hjá Lífeyrissjóðnum Brú, f. 24. ágúst 1975.
Börn þeirra:
1. Hrefna Brynja Gísladóttir yngri, f. 6. apríl 1997 í Eyjum.
2. Bryndís Gísladóttir, f. 17. júní 1999 í Eyjum.
3. Matthías Gíslason, f. 19. apríl 2006 á Akureyri.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Heimaslóð.
- Hrund.
- Íslendingabók.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.