Gróa Helgadóttir (Draumbæ)

From Heimaslóð
Jump to navigation Jump to search

Gróa Helgadóttir vinnukona frá Draumbæ fæddist 3. nóvember 1851, fór til Vesturheims 1889.
Foreldrar hennar voru Helgi Jónsson bóndi, sjómaður í Draumbæ, f. 8. september 1806, d. 3. september 1885, og sambýliskona hans Sigríður Guðmundsdóttir í Draumbæ, f. 26. september 1813, drukknaði 29. september 1855.
Gróa missti móður sína tæpra 4 ára. Hún var fósturbarn í Elínarhúsi hjá Guðrúnu Eyjólfsdóttur ekkju og húsfreyju 1860, fósturdóttir Guðrúnar 1870.
Hún var vinnukona í Sjólyst 1880, en 1884 fór hún austur á land og var vinnukona á Galtastöðum fremri í Hróarstungu á Héraði.
Hún var nokkur ár í sambandi við Jónas Jónasson þá vinnumann í Hróarstungu f. 14. jan. 1857 d. 30. okt. 1931.
Gróa eignaðist barn á Galtastöðum 1885 og 1888. Hún fór til Vesturheims 1889 frá Galtastöðum fremri með yngra barnið, en eldra barnið varð eftir hjá föður sínum. Hún stefndi á Winnipeg í Kanada. Sonur hennar Jón Júlíus lést 1889.

I. Barnsfaðir hennar var Jónas Jónasson, f. 18. júní 1860 í Hróarstungu. Hann var léttadrengur, sonur vinnumanns í Miðfjarðarnesi í Skeggjastaðasókn, N.-Múl. 1880, vinnumaður á Þorvaldsstöðum þar 1901, niðursetningur þar 1910, giftist síðar.
Börn þeirra voru:
1. Sigrún (Sarah) Olafsson húsfreyja í Minnesota, f. 3. september 1885, d. 16. október 1926, gift Warren James Warren, sem áður átti Rannveigu Jónsdóttur ekkju Þórðar Diðrikssonar trúboða í Spanish Fork.
2. Jón Júlíus Jónasson, f. 16. nóvember 1888 í Hróarstungu, N-Múl. Hann fór til Vesturheims frá Galtastöðum fremri, N-Múl. 1889, d. 29. júlí 1889.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Magnús Haraldsson.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vesturfaraskrá 1870-1914. Júníus H. Kristinsson. Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands 1983.
  • Þorgils Jónasson sagnfræðingur.