Guðjón Hlöðver Hlöðversson
Guðjón Hlöðver Hlöðversson bifreiðastjóri, afgreiðslumaður, álsmiður, fæddist 10. maí 1953 í Ráðagerði.
Foreldrar hans Katrín Sólveig Jónsdóttir húsfreyja, f. 5. nóvember 1929 og lést 5. febrúar 2006, og maður hennar Hlöðver Helgason verkamaður, sjómaður, skipstjóri, útgerðarmaður, f. 11. september 1927, d. 2. ágúst 2007.
Börn Katrínar og Hlöðvers:
3. Sævar Hlöðversson rennismiður, f. 10. september 1950 á Sjúkrahúsinu. Kona hans er María Pétursdóttir húsfreyja, starfsmaður á leikskóla.
4. Hjálmar Kristinn Hlöðversson kaupmaður, f. 3. mars 1952 í Ráðagerði. Kona hans er Elínborg Pétursdóttir húsfreyja, starfsmaður á leikskóla.
5. Guðjón Hlöðver Hlöðversson bifreiðastjóri, afgreiðslumaður, álsmiðir, f. 10. maí 1953 í Ráðagerði. Kona hans er Björg Ragnarsdóttir húsfreyja.
6. Hafdís Hlöðversdóttir húsfreyja, starfsmaður við bókband, f. 2. ágúst 1954 á Hásteinsvegi 55. Maður hennar er Sigmar Teitsson húsgagnasmiður.
7. Gunnar Hlöðversson kaupmaður, sjómaður, f. 30. janúar 1956 á Sjúkrahúsinu. Kona hans, (skildu), var Sigurlaug M. Ólafsdóttir.
8. Valgerður Oddný Hlöðversdóttir húsfreyja, bifreiðastjóri, verslunarmaður, f. 13. júlí 1962 í Hafnarfirði. Maður hennar er Pétur Andrésson bifreiðastjóri.
Þau Björg giftu sig, eignuðust þrjú börn. Þau búa í Kópavogi.
I. Kona Guðjóns Hlöðvers er Björg Margrét Lovísa Ragnarsdóttir úr Rvk, húsfreyja, f. 19. október 1957. Foreldrar hennar Elínborg Unnur Sigurðardóttir, f. 30. september 1934, d. 17. apríl 2022, og Ragnar Þorsteinsson, f. 11. apríl 1928, d. 29. september 2005.
Börn þeirra:
1. Stefán Guðjónsson, f. 4. september 1974.
2. Reynir Guðjónsson, f. 2. apríl 1980.
3. Unnur Guðjónsdóttir, f. 18. janúar 1985.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Guðjón.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.