Guðmundur Jónsson (Uppsölum)
Guðmundur Jónsson frá Uppsölum, bifvélavirki fæddist 1. september 1948.
Foreldrar hans Jón Bjarni Valdimarsson, vélstjóri, f. 25. september 1915, drukknaði 7. janúar 1950, og kona hans Guðrún Guðmundsdóttir, húsfreyja, f. 18. júlí 1906, d. 19. október 1977.
Þau Bjarnfríður giftu sig, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu við Búhamar 1. Þau skildu.
I. Fyrrum kona Guðmundar var Bjarnfríður Andrea Guðnadóttir frá Ísafirði, húsfreyja, fiskverkakona, aðhlynnandi, miðill, f. 10. nóvember 1958, d. 31. maí 2021. Foreldrar hennar Guðrún Veturliðadóttir, f. 31. maí 1921, d. 31. ágúst 2010, og Guðni Marinó Ingibjartarson, f. 21. mars 1917, d. 5. maí 2002.
Börn þeirra:
1. Guðrún Gumundsdóttir, f. 10. ágúst 1979.
2. Jón Sævar Guðmundsson, f. 11. febrúar 1992, d. 25. mars 2010.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Guðmundur.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.