Guðný Stefanía Stefánsdóttir (íþróttafræðingur)

Guðný Stefanía Stefánsdóttir húsfreyja, íþróttafræðingur, kennari á Ísafirði fæddist 12. september 1976.
Foreldrar hennar Stefán Guðlaugur Runólfsson frá Búðarfelli, framkvæmdastjóri, f. 10. september 1933, og kona hans Gunnbjörg Helga Víglundsdóttir húsfreyja, f. 15. ágúst 1944, d. 18. september 2015.
Börn Helgu og Stefáns:
1. Sóley Stefánsdóttir, fyrsta lögreglukona í Eyjum, húsfreyja, uppeldisfræðingur, f. 13. ágúst 1967. Maður hennar er Þorsteinn Kristvinsson rafeindavirki og framkvæmdastjóri.
2. Smári Stefánsson forstöðumaður, f. 21. júní 1970. Kona hans er Guðrún Sæmundsdóttir húsfreyja, skrifstofukona.
3. Guðný Stefanía Stefánsdóttir íþróttafræðingur, kennari á Ísafirði, f. 12. september 1976. Maður hennar er Jón Hálfdán Pétursson íþróttafræðingur og kennari.
Þau Jón Hálfdán giftu sig, eignuðust þrjú börn. Þau búa á Ísafirði.
I. Maður Guðnýjar Stefaníu er Jón Hálfdán Pétursson íþróttafræðingur, kennari, f. 13. apríl 1977 í Keflavík, en alinn upp á Ísafirði. Foreldrar hans Pétur Jónsson, f. 29. september 1953, og Hansína Sigurðardóttir, f. 2. nóvember 1954.
Börn þeirra:
1. Stefán Freyr Jónsson, f. 13. júní 2004.
2. Pétur Þór Jónsson, f. 21. maí 2008.
3. Hálfdán Breki Jónsson, f. 11. maí 2012.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Guðný.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.