Haraldur Haraldsson (vélstjóri)
Haraldur Haraldsson, sjómaður, vélstjóri, nú starfsmaður Áhaldahússins, fæddist 17. apríl 1962.
Foreldrar hans Haraldur Traustason, skipstjóri, útgerðarmaður, f. 22. nóvember 1939, d. 13. júní 1993, og kona hans Edda Tegeder, húsfreyja, f. 7. apríl 1939.
Börn Eddu og Haraldar:
1. Þóranna Haraldsdóttir húsfreyja, starfsmaður við heimilishjálp, f. 30. janúar 1958, d. 15. desember 2019. Sambýlismaður hennar var Óskar Einarsson.
2. Hermann Haraldsson skipatæknifræðingur, f. 17. desember 1959. Kona hans er Brynhildur Jakobsdóttir.
3. Jón Trausti Haraldsson vélvirkjameistari í Reykjavík, f. 16.
4. febrúar 1961, d. 31. mars 2010. Sambýliskona hans, skildu, er Valborg Elín Kjartansdóttir.
5. Haraldur Haraldsson, sjómaður, vélstjóri, starfsmaður Áhaldahússins, f. 17. apríl 1962. Sambýliskona hans er Sæunn Helena Guðmundsdóttir.
Þau Sæunn Helena hófu sambúð, eignuðust þrjú börn. Þau búa við Foldahraun 38.
I. Sambúðarkona Haraldar er Sæunn Helena Guðmundsdóttir, húsfreyja, vinnur í þjónustuíbúðum aldraðra í Eyjum, f. 19. nóvember 1960.
Börn þeirra:
1. Guðmundur Daði Haraldssson, f. 19. nóvember 1982.
2. Karítas Haraldsdóttir, 2. júní 1997.
3. Hersir Haraldsson, f. 2. júní 1997.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
- Sæunn Helena.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.