Hjörtur Kristján Elíasson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Hjörtur Kristján Elíasson húsasmiður fæddist 10. janúar 1957 og lést 12. ágúst 2023.
Foreldrar hans Einar Elías Kristjánsson, sjómaður, verkamaður, f. 19. febrúar 1919, d. 4. janúar 2011, og kona hans Viktoría Klara Hjartardóttir, húsfreyja, iðnverkakona, f. 29. júní 1924, d. 7. júní 2013.

Börn Klöru og Elíasar:
1. Ellý Elíasdóttir húsfreyja, f. 1. desember 1944 í Hellisholti. Maður hennar Guðmundur Weihe Stefánsson.
2. Óskar Elíasson, f. 8. ágúst 1947 í Hellisholti. Kona hans Ingibjörg Sigrún Guðjónsdóttir.
3. Guðný Sólveig Elíasdóttir húsfreyja, frístundaheimilis- og leikskólastarfsmaður í Reykjavík, f. 25. ágúst 1949 í Hellisholti, d. 28. apríl 2015. Maður hennar var Sigtryggur Birgir Antonsson.
4. Hjörtur Kristján Elíasson, f. 10. janúar 1957 á Hólagötu 37, d. 12. ágúst 2023. Kona hans var Kristín Ingólfsdóttir.
5. Ómar Elíasson, f. 28. nóvember 1960 að Hólagötu 37. Kona hans Hallfríður Steinunn Sigurðardóttir.

Þau Kristín giftu sig, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu á Selfossi. Þau skildu.

I. Fyrrum kona Hjartar er Kristín Brynja Ingólfsdóttir húsfreyja, sjúkraliði, f. 26. desember 1955. Foreldrar hennar Ingólfur Björgvinsson, f. 18. júní 1923, d. 30. september 2006, og Anna Tyrfingsdóttir, f. 28. nóvember 1928, d. 12. febrúar 2020.
Börn þeirra:
1. Unnur Björk Hjartardóttir, f. 15. febrúar 1977.
2. Hrafnhildur Hjartardóttir, f. 11. mars 1981.
3. Arnór Ingi Hjartarson, f. 19. ágúst 1989.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.