Hrefna Harðardóttir (Blómsturvöllum)

Hrefna Harðardóttir húsfreyja, myndlistarkona, fyrrv. framkvæmdastjóri fæddist 5. október 1954.
Foreldrar hennar Hörður Sigmundsson verkamaður, matsveinn, f. 8. desember 1928, d. 19. nóvember 1974, og kona hans Inga Halldóra Kristín Maríusdóttir húsfreyja, verslunarmaður, innheimtustjóri, f. 22. október 1931, d. 8. júní 1997.
Börn Ingu og Harðar:
1. María Harðardóttir hárgreiðslu- og sýningarstúlka, f. 27. febrúar 1952 á Blómsturvöllum, Faxastíg 27. Maður hennar, skildu, var Sverrir Agnarsson.
2. Hrefna Harðardóttir myndlistarkona, fyrrverandi framkvæmdastjóri, f. 5. október 1954 á Blómsturvöllum, Faxastíg 27. Fyrri maður hennar Ólafur Haukur Óskarsson. Síðari maður Hrefnu er Björn Steinar Sólbergsson.
3. Snorri Harðarson rafvirki, f. 28. maí 1963 í Reykjavík. Fyrri kona hans, skildu, var Lísa Björk Ingólfsdóttir. Síðari kona Guðný Lilja Björnsdóttir.
Þau Ólafur Haukur giftu sig, eignuðust eitt barn . Þau skildu.
Þau Björn Steinar giftu sig, eignuðust eitt barn. Þau eiga lögheimili í Eyjafjarðarsveit.
I. Fyrrum maður Hrefnu er Ólafur Haukur Óskarsson bifreiðastjóri, f. 12. mars 1951. Foreldrar hans Óskar Thorberg Pálsson, f. 29. október 1930, d. 20. janúar 2015, og Erla Guðmundsdóttir, f. 16. maí 1932.
Barn þeirra:
1. Linda Ólafsdóttir, f. 7. júlí 1974 í Rvk.
II. Maður Hrefnu er Björn Steinar Sólbergsson organisti, f. 27. september 1961. Foreldrar hans Sólberg Björnsson, f. 7. nóvember 1932, d. 19. júlí 2013, og Arnfríður Árnadóttir, f. 15. júlí 1931.
Barn þeirra:
2. Sólbjörg Björnsdóttir, f. 24. janúar 1983.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Heimaslóð.
- Hrefna.
- Íslendingabók.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.