Hrefna Jónsdóttir (Kirkjudal)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Hrefna Jónsdóttir frá Kirkjudal, húsfreyja, verslunarmaður, starfsmaður leikskóla, fæddist 23. mars 1941.
Foreldrar hennar Sigurlín Ólafsdóttir húsfreyja, f. 12. nóvember 1903, d. 29. maí 1995, og Jón Þórarinn Hinriksson sjómaður, vélstjóri, verkamaður, f. 17. mars 1918, d. 26. ágúst 1983.

Þau Sverrir giftu sig, eignuðust þrjú börn. Þau skildu.
Þau Hilmar giftu sig, eignuðust eitt barn.

I. Fyrrum maður Hrefnu var Sverrir Jónsson úr Rvk, verkamaður, f. 14. apríl 1942, d. 17. janúar 1993. Foreldrar hans Jón Þorbergur Jóhannesson, f. 20. október 1916, d. 29. maí 1996, og Ragna Sigurgísladóttir, f. 23. júní 1919, d. 6. júní 1977.
Börn þeirra:
1. Þórunn Kristín Sverrisdóttir, f. 31. janúar 1961.
2. Arnar Sverrisson, f. 19. mars 1962.
3. Hrafn Sverrisson, f. 13. maí 1965.

II. Maður Hrefnu er Hilmar Sigurðsson úr Rvk, húsgagnasmiður, f. 2. september 1949. Foreldrar hans Soffía Ingibjörg Sigríður Sigurðardóttir, f. 4. október 1925, d. 28. september 2005, og Sigurður Valdimarsson, f. 30. maí 1914, d. 15. nóvember 1994.
Barn þeirra:
4. Sigurður Hilmarsson, f. 10. október 1980.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.