Ingibjörg Eyfjörð Skjaldardóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Ingibjörg Eyfjörð Skjaldardóttir, húsfreyja, verkakona, verslunarmaður í Rvk fæddist 23. desember 1956.
Foreldrar hennar Skjöldur Eyfjörð Stefánsson, togarasjómaður, f. 13. ágúst 1931, d. 20. maí 1990, og kona hans Berta Valdimarsdóttir, húsfreyja, f. 25. ágúst 1921, d. 7. júlí 1972.

Barn Bertu með Jóni Péturssyni:
1. Pétur Jónsson rafvélavirki, f. 16. júlí 1943 í Sigtúni .
Barn Bertu með Ingva Rafni:
2. Jón Valdimar Ingvason, f. 28. desember 1951 í Sigtúni.
Börn Bertu með Skildi Eyfjörð:
3. Sonja Eyfjörð Skjaldardóttir húsfreyja, hárgreiðslukona, f. 29. mars 1955. Maður hennar Júlíus Hólmgeirsson vélstjóri.
4. Ingibjörg Eyfjörð Skjaldardóttir húsfreyja, f. 23. desember 1956 að Hásteinsvegi 7. Barnsfaðir hennar Matthías Daði Sigurðsson. Maður hennar Guðmundur Viðar Guðmundsson húsasmiður.
5. Fannar Eyfjörð Skjaldarson skipstjóri, f. 6. mars 1958, alinn upp á Reykhólum í A.-Barð. Fyrrum kona hans Dóróthea Sigvaldadóttir. Kona hans Elín Helga Magnúsdóttir.
6. Halldóra Eyfjörð Skjaldardóttir húsfreyja, fyrrum sýningarstúlka, f. 22. desember 1960.

Ingibjörg eignaðist barn með Matthíasi Daða 1974.
Þau Guðmundur Viðar giftu sig, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu á Skagaströnd og í Rvk. Þau skildu.

I. Barnsfaðir Ingibjargar er Matthías Daðí Sigurðsson, f. 23. desember 1955.
Barn þeirra:
1. Berta Eyfjörð Matthíasdóttir, f. 15. júlí 1974.

II. Fyrrum maður Ingibjargar er Guðmundur Viðar Guðmundsson, sjómaður, smiður, f. 10. mars 1957. Foreldrar hans Guðmundur Lárusson, f. 5. júní 1929, d. 15. október 2002, og Erla Valdimarsdóttir, f. 8. júní 1934, d. 29. september 2008.
Börn þeirra:
2. Kristbjörg Anna Guðmundsdóttir, f. 9. maí 1979.
3. Fannar Sveinn Guðmundson, f. 23. júlí 1984.
4. Guðmundur Lárus Guðmundsson, f. 29. janúar 1988.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.