Ingibjörg Guðrún Vigfúsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Ingibjörg Guðrún Vigfúsdóttir húsfreyja fæddist 7. júlí 1879 og lést 14. september 1942.
Foreldrar hennar voru Guðbjörg Guðmundsdóttir, f. 2. ágúst 1852, d. 4. apríl 1941, og Vigfús Björnsson, f. 20. mars 1846, d. 9. mars 1899.

Guðrún var hjú í Garði í Eyjum 1910, húsfreyja á Arnarhóli og Sæbergi, síðar húsfreyja í Djúpadal í Hvolhreppi. Þau Sigursteinn giftu sig, eignuðust fjögur börn, en misstu tvö þeirra nýfædd. Þau bjuggu í Eyjum, en síðan í Djúpadal í Hvolhreppi, Rang.

I. Maður Guðrúnar var Sigursteinn Þorsteinsson skósmiður, kaupmaður, bóndi, f. 2. júní 1893, d. 26. júní 1966.
Börn þeirra:
1. Sigríður Sigursteinsdóttir, f. 15. október 1915 á Arnarhóli, d. 21. maí 1994 .
2. Alexander Sigursteinsson, f. 22. maí 1917 á Sæbergi, d. 15. apríl 1996.
3. Vigfús Sigursteinsson, f. 1. nóvember 1918 á Sæbergi, d. 2. nóvember 1918.
4. Þorsteinn Sigursteinsson, f. 1. nóvember 1918 á Sæbergi, d. 1. nóvember 1918.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.