Jón Gíslason (næringarfræðingur)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Jón Gíslason næringarfræðingur, forstjóri Matvælastofnunar fæddist 31. janúar 1953 í Eyjum.
Foreldrar hans Jónína Sigrún Skúladóttir Jónsdóttir frá Austurey í Laugardal í Grímsnesi, Árn., f. 13. júní 1911, d. 8. desember 1994, og maður hennar Gísli Þór Sigurðsson, (skírður Þórir) rafvirki, f. 3. mars 1922 í Höjdalshúsi, d. 26. október 2009.

Börn Sigrúnar og Gísla Þórs:
1. Sigurður Gíslason arkitekt, f. 6. apríl 1946 í Reykjavík. Kona hans Sigrún Einarsdóttir tækniteiknari.
2. Sigurbjörg Gísladóttir efnafræðingur, f. 4. nóvember 1948 á Selfossi. Sambúðarmaður hennar Hreinn Hjartarson veðurfræðingur.
3. Jón Gíslason næringarfræðingur, forstjóri Matvælastofnunar, f. 31. janúar 1953 í Eyjum. Fyrrum kona hans Bergljót Bergsdóttir. Kona hans Ástfríður Margrét Sigurðardóttir.

Þau Bergljót giftu sig, eignuðust eitt barn. Þau skildu. Þau Ástfríður Margrét giftu sig, eignuðust tvö börn. Þau búa á Selfossi.

I. Fyrrum kona Jóns er Bergljót Bergsdóttir frá Egilsstöðum, f. 21. júlí 1951. Foreldrar hennar Svanhildur Sigurðardóttir, f. 26. desember 1929, d. 24. júní 2022, og Bergur Guðlaugur Ólason, f. 24. september 1919, d. 1. ágúst 2010.
Barn þeirra:
1. Vala Jónsdóttir, f. 14. nóvember 1983.

II. Kona Jóns er Ástfríður Margrét Sigurðardóttir úr Rvk, húsfreyja, gæðastjóri hjá Matvælastofnun, f. 3. október 1965. Foreldrar hennar Sigurður Árnason, f. 16. júlí 1919, d. 29. mars 2002, og Þóra Guðmundsdóttir, f. 1. júní 1928, d. 28. október 2013.
Börn þeirra:
2. Sigrún Jónsdóttir, f. 8. nóvember 1995.
3. Þóra Jónsdóttir, f. 2. janúar 1998.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.