Jón Högni Stefánsson
Jón Högni Stefánsson sjómaður, vélstjóri fæddist 27. ágúst 1968 í Eyjum.
Foreldrar hans Stefán Jón Friðriksson sjómaður, bátsmaður, stýrimaður, skipstjórri, útgerðarmaður, f. 12. febrúar 1943, og Ágústa Patricia Högnadóttir húsfreyja, f. 14. mars 1944.
Börn Ágústu og Stefáns:
1. Anna Stefánsdóttir starfsmaður Borgarbókasafnsins í Reykjavík, Landmælinga Íslands og er nú skrifstofumaður hjá verslun tengdaforeldra sinna, f. 26. júlí 1964 í Eyjum. Maður hennar Oddur Sigurðsson.
2. Jón Högni Stefánsson sjómaður, vélstjóri í Eyjum, f. 27. ágúst 1968 í Eyjum. Fyrrum sambýliskona hans Dagbjört Laufey Emilsdóttir. Kona hans Stefanía Ársælsdóttir.
3. Eyrún Stefánsdóttir hárgreiðslukona í Noregi, f. 17. október 1977 í Eyjum. Sambýlismaður hennar Eyvar Örn Geirsson.
4. Guðni Davíð Stefánsson verslunarmaður, f. 11. janúar 1982 í Eyjum.
Þau Dagbjört Laufey hófu sambúð, eignuðust tvö börn. Þau skildu.
Þau Stefanía giftu sig, eignuðust eitt barn. Þau búa við Búastaðabraut 2.
I. Fyrrum sambúðarkona Jóns er Dagbjört Laufey Emilsdóttir frá Akureyri, húsfreyja, verkakona, f. 27. október 1967.
Börn þeirra:
1. Stefán Ingi Jónsson, f. 2. júlí 1993.
2. Patrekur Emil Jónsson, f. 20. apríl 1995.
II. Kona Jóns Högna er Stefanía Ársælsdóttir húsfreyja, f. 16. maí 1974. Foreldrar hennar Ársæll Helgi Árnason, f. 24. maí 1949, og Ingunn Sigurbjörnsdóttir, f. 21. september 1949.
Barn þeirra:
3. Ingunn Anna Jónsdóttir, f. 30. nóvember 2004.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
- Jón Högni.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.