Rannveig Ísfjörð
Rannveig Ísfjörð húsfreyja, byggingafulltrúi í Eyjum fæddist 25. ágúst 1987.
Foreldrar hennar Íris Jónsdóttir, f. 15. ágúst 1964, og Haraldur Bjargmundsson, f. 22. október 1950.
Þau Pálmi giftu sig, eignuðust fimm börn. Þau búa við Hrauntún 12.
I. Maður Rannveigar er Pálmi Harðarson viðskiptafræðingur, með M.A.-próf í endurskoðun og fjármálum, verkefnastjóri hjá Deloitte, f. 13. júlí 1987.
Börn þeirra:
1. Íris Emma Ísfjörð Pálmadóttir, f. 29. mars 2014.
2. Hörður Kári Ísfjörð Pálmason, f. 24. september 2017.
3. Hákon Þór Ísfjörð Pálmason, f. 3. júlí 2019.
4. Guðmundur Karl Ísfjörð Pálmason, f. 28. júlí 2022.
5. Anna Kristín Ísfjörð Pálmadóttir, f. 4. júlí 2025.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
- Pálmi.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.