Sigurbjörg Sigurðardóttir (Burstafelli)

From Heimaslóð
Jump to navigation Jump to search

Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir aðrar sem hafa borið nafnið „Sigurbjörg Sigurðardóttir


Árni og Sigurbjörg.
Árni, Sigurbjörg og börn

Sigurbjörg Sigurðardóttir fæddist 25. júní 1883 að Stóru-Breiðavíkurhjáleigu og lést 15. mars 1970.

Ætt og uppruni

Foreldrar Sigurbjargar voru Sigurður bóndi á Stuðlum í Norðfjarðarhreppi, f. 5. maí 1855 á Fáskrúðsfirði, d. 8. apríl 1931, Finnboga bónda í Brimnesgerði á Faskrúðsfirði, f. 1823, Erlendssonar og konu Finnboga, Elínar húsfreyju, f. 1821 í Hrafnagilshreppi í Eyjafirði, Þorsteinsdóttur, Þorlákssonar. Móðir Sigurbjargar og kona Sigurðar var Guðfinna húsfreyja, f. 1859 í Hólmasókn í Reyðarfirði, d. 3. október 1892, Árna bónda á Völlum og Breiðavíkurhjáleigu við Reyðarfjörð, f. 1820, Ólafssonar og konu Árna bónda, Þuríðar húsfreyju, f. 1821 í Breiðavíkurhjáleigu, Jónsdóttur, Andréssonar.

Lífsferill

23 ára gömul var Sigurbjörg ráðskona í Kastala í Mjóafirði. Þar kynntist hún Einari Einarssyni af Álftanesi, sem þá var húsmaður í Kastala 23 ára gamall. Sigurbjörg og Einar gengu í hjónaband þann 6. júní 1906 í Mjóafjarðarkirkju. Þau fóru að búa að Stuðlum í Norðfirði 1906. Einar lést ári síðar, 12. júlí 1907, á Franska spítalanum á Fáskrúðsfirði. Þeirra barn var Guðfinna Einarsdóttir fædd 22. júlí 1906.

Nokkrum árum síðar kynntist Sigurbjörg ungum manni frá Vestmannaeyjum Árna Oddssyni, sem þá var sumarmaður við sjóróðra í Norðfirði. Þau hófu búskap að Stuðlum árið 1909. Fyrsta barn þeirra, Sigríður, fæddist að Stuðlum 19. september 1910.

Árið 1912 fluttust þau til Vestmannaeyja. Í Vestmannaeyjum bjuggu þau fyrst á Kirkjulandi og síðar í Götu, þar fæddist Aðalheiður árið 1913. Árni stundaði sjó og var formaður á Ögðu og Ísak veturna 1912 og 1913.

Árni fór austur á sumarvertíðir og flutti fjölskyldan öll aftur að Stuðlum og var þar hjá föður Sigurbjargar. Þau byggðu hús í landi Stuðla og voru innréttuð þar tvö herbergi. Þar fæddist Pálína 1914. Sigurbjörg og Árni stunduðu sjóinn saman á litlum báti. Vor og haust stundaði Árni róðra frá Norðfirði. Árið 1916 fluttust þau til Norðfjarðar og dvöldu þar fyrst í lítilli íbúð á pakkhúslofti, fljótlega fluttust þau að Sólheimum, síðan að Guðjónshúsi („Brennu“). Þar fæddist Lára 1916 og Helga 1918. Árið 1919 fluttist fjölskyldan aftur til Vestmannaeyja, en þá var Árni orðinn heilsulítill.
Þau bjuggu á Heiði 1919, á Burstafelli 1920 og síðan. Þar fæddist Vilhjálmur 1921. Árni stundaði sjó fyrstu árin en gerðist síðan umboðsmaður Brunabótafélags Íslands og dyravörður í Nýja-Bíói. Árni eignaðist Burstafell og stækkaði það. Síðasta barn Sigurbjargar og Árna, Óli Ísfeld, fæddist þar 1927. Sigurbjörg vann í mörg ár við fiskþurrkun og fleira á sumrum en var með kostgangara á vertíðum.

Þann 16. júní 1938 gerðist sá válegi atburður að eldur kom upp í Burstafelli, þegar fjölskyldan var nýgengin til náða. Í brunanum lést Árni ásamt yngsta syni þeirra hjóna, Óla Ísfeld, og dóttursyni Árna, sem var sonur Aðalheiðar.
Eftir brunann var byggt bráðabirgðaþak yfir kjallarann og bjó Sigurbjörg þar ásamt Aðalheiði, börnum hennar og Vilhjálmi syni sínum.
Sigurbjörg bjó hjá syni sínum Vilhjálmi og tengdadóttur, Maríu Gísladóttur á Burstafelli þar til hún veiktist og lést á Sjúkrahúsi Vestmanneyja 15.mars 1970.

I. Fyrri maður Sigurbjargar, (6. júní 1906), var Einar Einarsson, f. 1883 á Álftanesi, d. 12. júlí 1907. Foreldrar hans voru Einar Einarsson sjómaður á Bjarnastöðum á Álftanesi 1880, ekkill í Haugshúsum þar 1890, f. 24. apríl 1850, og kona hans Oddbjörg Sigurðardóttir húsfreyja, f. 1845, d. 24. október 1890.
Barn þeirra var
1. Guðfinna Einarsdóttir húsfreyja, f. 22. júlí 1906, d. 16. októbe 1999.

II. Síðari maður Sigurbjargar var Árni Oddsson formaður, sjómaður, umboðsmaður frá Oddsstöðum, f. 6. maí 1888, fórst í eldi 16. júní 1938.
Börn þeirra:
1. Sigríður Árnadóttir húsfreyja, f. 19. september 1910, d. 13. apríl 2004.
2. Steinunn Aðalheiður Árnadóttir húsfreyja, f. 7. janúar 1913 í Götu, d. 20. október 1987 í Reykjavík.
3. Einarína Pálína Árnadóttir húsfreyja, f. 27. maí 1914 á Stuðlum í Norðfirði, lést 19. desember 1993 í Reykjavík.
4. Lára Jóhanna Árnadóttir húsfreyja, matráðskona, f. 28. júlí 1916 í Brennu (Guðjónhúsi) í Norðfirði, d. 29. apríl 2012.
5. Helga Þuríður Árnadóttir húsfreyja, f. 15. maí 1918 í Brennu (Guðjónshúsi) í Norðfirði, d. 8. desember 2008.
6. Vilhjálmur Árnason verslunarmaður og framkvæmdastjóri, f. 19. febrúar 1921 á Burstafelli, d. 19. febrúar 1993.
7. Óli Ísfeld Árnason, f. 17. júlí 1927, fórst í eldi 16. júní 1938.

Myndir


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.