Stefán Sigurðsson (matsveinn)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Stefán Sigurðsson matsveinn fæddist 6. maí 1956.
Foreldrar hans voru Sigurður Árni Kristinsson frá Hringsdal í Grenivíkursókn, bóndi, síðar á Akureyri, f. 10. maí 1926, d. 11. maí 2001, og Sigrún Stefánsdóttir frá Gautsstöðum í Eyjafirði, húsfreyja, verkakona, verslunarmaður, f. 5. júlí 1934, d. 3. júlí 2003.

Þau Guðrún giftu sig, eignuðust þrjú börn, en eitt þeirra fæddist andvana. Þau skildu.
Þau Regína giftu sig, eignuðust ekki börn saman. Þau skildu.
Stefán býr við Áshamar 71.

I. Fyrum kona Stefáns er Guðrún Gísladóttir húsfreyja, bankastarfsmaður, f. 22. júlí 1956.
Börn þeirra:
1. Gísli Stefánsson, með B.A-próf í félagsvísindum. Hann hefur verið æskulýðsfulltrúi, framkvæmdastjóri Landakirkju og kirkjugarðsins, og er bæjarfulltrúi, varaþingmaður, f. 12. júní 1987. Kona hans Kristín Sjöfn Sigurðardóttir.
2. Andvana drengur, f. 14. febrúar 1997.
3. Stefán Gauti Stefánsson vélvirki f. 31. júlí 1998. Unnusta hans Erna Halldórsdóttir.

II. Fyrrum kona Stefáns er Regína Kristjánsdóttir úr Rvk, líkamsræktarkennari, jogakennari f. 8. júlí 1964. Foreldrar hennar Kristján Friðriksson, f. 29. júlí 1935, d. 11. september 2010, og Conkordía Konráðsdóttir, f. 18. desember 1942.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.